Sjö skólar tóku þátt í íþróttahátíðinni í Bolungarvík

Þessir kappar skemmtu sér vel á íþróttahátíðinni. Mynd: Grunnskóli Bolungarvíkur.

Unglingarnir á norðanverðum Vestfjörðum skemmtu sér vel á íþróttahátíð Grunnskólanna sem haldin var í Bolungarvík í síðustu viku. Öllum skólum á Vestfjörðum er boðið að taka þátt og í ár komu nemendur frá Bolungarvík, Flateyri, Hólmavík, Ísafirði, Suðureyri, Súðavík og Þingeyri.

Hátíðin fór fram að venju í Musteri vatns og vellíðunar og var keppt í hinum ýmsu greinum eins og bandý, fótbolta, sundblaki, körfubolta, sundi, skák, spurningakeppni og borðtennis. Fyrir þremárum var hefðbundin keppni milli skólanna aflögð og nú spila nemendur í blönduðum liðum og liðin eru svo nefnd og kennd við helstu liti regnbogans.

Keppnin og hátíðin gekk vel og allir þátttakendur voru til fyrirmyndar. Þegar svona hátíð er haldin er samtakamátturinn mikill hjá starfsfólki skólanna og Musterisins, foreldrum og nemendm. Forsvarsmenn Íþróttahátíðarinnar eru þakklát öllum þeim sem komu að Íþróttahátíðinni. Þetta er mikilvæg hátíð sem gerir nemendum kleift að keppa og taka þátt á sínum forsendum. Upplifun nýs Íslendings vakti athygli hjá einum af skipuleggjendum því þegar hún var spurð hvernig henni líkaði svona hátíð þá var svarið:
„I come from another country, from Iraq and I have never been in a compatition like this, this is amazing!“

Um kvöldið var Íþróttahátíðarball, þar voru úrslitin tilkynnt. Þau fóru þannig að í 1. sæti urðu Rauðir með 51 stig, í 2. sæti Bláir með 50 stig, í 3.sæti Grænir með 40 stig og í 4. sæti Gulir með 36 stig.

Það er auðvitað ekki ball nema það sé dansað og nemendur dilluðu sér og skemmtu undir tónum Valda Kára plötuþeytis Grunnskólans í Bolungarvík og Dj Egils Spegils og Aron Can.

Við undirbúning leituðu nemendur til fyrirtækja í Bolungarvík og á Ísafirði til að fá styrki. Gekk það ágætlega og nemendur, foreldrar og starfsfólk eru þakklát fyrir að eiga góða bakhjarla í nærsamfélaginu.

Sæbjörg

sfg@bb.is

DEILA