105,3 metrar í hábunguna!

Þarna mun gangnamunninn í Dýrafirði verða.

Í viku 37 voru grafnir 90,1 m í Dýrafjarðargöngum. Lengd ganganna í lok viku 37 var 3.579,9 m sem er 67,5% af heildarlengd ganganna. Í lok vikunnar voru 105,3 m í hábunguna í göngunum.

Þunna rauða setlagið sem var að koma í ljós í lok síðustu viku reis upp eftir sniðinu eftir því sem lengra var farið og undir því er ágætis basalt. Farið var í gegnum berggang sem kvíslaðist stundum í tvær greinar.

Efnið úr göngunum var keyrt í fláafleyga næst munnanum. Unnið var við skeringar í syðsta enda vegarins.

Unnið var alla vikuna við járnabindingar á syðri stöpli Mjólkárbrúar.

Í Dýrafirði var haldið áfram með vegfyllingar og við að koma upp aðstöðu s.s. búðum og verkstæðum.

Unnið var við bergstyrkingar í forskeringunni og er búið að merkja fyrir munnanum.

Skering suður af Mjólkárvirkjun.

Sæbjörg

bb@bb.is

DEILA