Sögurölt og málþing um minjar og menningu Stranda

Hveravík á Ströndum þar sem málþingið verður haldið 18. ágúst.

Nóg verður um að vera á Ströndum um helgina. Sögurölt og fornleifaganga um Sandvík verður á dagskránni föstudaginn 17. ágúst frá 18:00-20:00. Bergsveinn Birgisson fræðimaður og rithöfundur mun þar segja frá rannsókn sem er þarna í gangi ásamt fornleifafræðingum sem eru þarna að störfum. Rannsóknin er mjög spennandi því vísbendingar hafa fundist um að bær hafi verið þarna í Sandvíkinni á landsnámsöld, en engar ritaðar heimildir benda til þess. Mæting í gönguna er við Bakkagerði, neðan við Bæ á Selströnd.

Forsaga málsins er sú að fyrir nokkrum árum urðu íbúar í Bakkagerði á Selströnd varir við bein sem stóðu út úr sjávarbakka sem hafði brotnað niður vegna ágangs sjávar. Haft var samband við Albínu Huld Pálsdóttur dýrabeinafornleifafræðing og sýndi sig að þarna var öskuhaugur þar sem fannst litríkt samansafn af beinum úr sjávardýrum, fuglum og fiskum í viðbót við svína- og geitarbein svo dæmi séu nefnd. Starfsmenn Minjastofnunar Íslands tóku síðan bein neðarlega úr haugnum til rannsóknar og sendu til aldursgreiningar. Sýndi sú greining fram á að mestar líkur eru á að beinin séu frá árabilinu 850–910.

Í dag hefur alþjóðlegt teymi fornleifafræðinga tekið málið í sínar hendur og er hópurinn við rannsókn á þessum mannvistarleifum í Sandvík á Ströndum nú í ágúst. Kannað verður umfang ruslahaugsins og reyna að finna útlínur bæjarins og annarra bygginga.
Sögurölt um Dali og Strandir hafa verið reglulegir viðburðir í sumar og er samvinnuverkefni Byggðasafns Dalamanna, Sauðfjárseturs á Ströndum og Náttúrubarnaskólans.

Á laugardeginum 18. ágúst verður svo haldið heilmikið málþing í nýjum samkomusal í Hveravík við Steingrímsfjörð á Ströndum og stendur frá 11:00-16:30. Málþingið hefur yfirskriftina Landnámsbær fundinn á Selströnd – málþing um minjar og menningu Stranda. Bergsveinn Birgisson stjórnar málþinginu í samstarfi við fjölda aðila á heimaslóðum, landsvísu og erlendis. Þar verða niðurstöður rannsóknarinnar settar í samhengi við strandmenningu landa við Norður-Atlantshafið, bæði í austri og vestri.

Eru allir sem áhuga hafa hjartanlega velkomin. Flest erindin verða flutt á íslensku og fundarstjóri flytur samantekt á íslensku um þau erindi sem haldin verða á ensku.

Dagskrá málþingsins laugardaginn 18. ágúst:
11:00 Ávörp frá oddvita Kaldrananeshrepps og menningarfulltrúa Vestfjarða
11:15 Howell Roberts – Torf, grjót og landnám
11:35 Morten Ramstad – Veiðar og strandmenning (Hunting and fishing in coastal areas)*
12:00 Lísabet Guðmundsdóttir – Rekaviður og kúfskeljar
12:20 Ramona Harrison – Sögur af dýrabeinum – Siglunes á Siglufirði sem dæmi (Tales from animal bones – Siglunes in Siglufjörður as an example)*
12:40 Konrad Smiarowski – Veiðar, fiskveiðar og húsdýrahald á norræna Grænlandi (Hunting, Fishing and Farming in Norse Greenland)*
13:00 Hádegishlé. Súpa fyrir ræðumenn og gesti á hóflegu verði
13:30 Á söguslóðum með Magnúsi Rafnssyni í Strákatanga (stutt ganga): Hvalveiðistöð Baska og kuml frá landnámsöld
14:00 Gísli Pálsson – Hlunnindi og kvaðir / tengslanet
14:20 Bergsveinn Birgisson – Landnám Gríms Ingjaldssonar í Grímsey
14:40 Jón Jónsson – Að virkja hugvitið, sögur og sagnir
15:00 Elín Agla Briem – Að muna með því að gera
15:20 Adolf Friðriksson – Kuml á Vestfjörðum
15:40 Hlé, kaffiveitingar
16:00 Umræður og samantekt

Málþingið er styrkt af Uppbyggingasjóði Vestfjarða og er hluti af Menningararfsári Evrópu 2018. Helstu þátttakendur í verkefninu auk heimamanna eru Háskólinn í Bergen í Noregi og Fornleifastofnun Íslands.

Dagrún Ósk
dagrun@bb.is

DEILA