Umhverfisstofnun hefur samið við Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Suðurnesjum að rannsaka umfang örplastmengunar í kræklingi á völdum stöðum við Ísland. Þetta er einnig áfangi í að leggja grunn að frekari rannsóknum á örplasti í hafinu og lífríki þess við Ísland.
Sýnatökur hafa verið í gangi í sumar og klárast um miðjan september. Í kjölfarið verður farið í greiningar á plastinu. Notaðar verða sömu greiningaaðferðir og í norsku NIVA rannsókninni frá 2017, þar sem plastagnir eru flokkaðar og stærðarmældar; 0,15 – 5 mm (örplast) og > 5 mm (stærri plastagnir). Til að staðfesta að agnir séu plastefni, verður gerð prófun með heitri nál. Fjöldi agna pr. dýr er síðan áætlaður.
![](https://www.bb.is/wp-content/uploads/2018/08/Bjarnarhofn2_kraeklingur_plast_agust2018_HalldorPalmar_minnkud-229x300.jpg)
Niðurstöður, sem bornar verða saman við önnur lönd þar sem sambærilegum aðferðum hefur verið beitt á skelfisk, eru væntanlegar fyrir lok ársins 2018.
Sæbjörg
bb@bb.is