HSV greiðir helming þátttökugjalds á unglingalandsmótið

HSV vill gjarnan fjölga þátttakendum frá félagi sínu á Unglingalandsmóti UMFÍ sem haldið verður í Þorlákshöfn um Verslunarmannahelgina. Ráðamenn félagsins ætla því þess vegna hvetja sem best þau geta til þátttöku og til dæmis með því að greiða helming þátttökugjalds sinna iðkenda á mótinu.

Það vita það allir sem hafa farið á Unglingalandsmót að því fylgir lífsreynsla og gleði sem gleymist ekki. Unglingalandsmót UMFÍ er vímulaus íþrótta- og fjölskylduhátið sem haldin er árlega um verslunarmannahelgina. Árið 2018 verður mótið haldið í Þorlákshöfn. Þar eru allar aðstæður til fyrimyndar, glæsileg íþróttamannvirki og frábær aðstaða fyrir mótsgesti.
Á Unglingalandsmótinu er uppá fjölda keppnisgreina fyrir 11-18 ára börn og ungmenni. Þess utan er fjölmargt í boði fyrir bæði börn og fullorðna og allt frá morgni til kvölds. Á dagskránni eru helstu greinar, knattspyrna, körfubolti og frjálsar. En margar nýjungar eru líka kynntar til leiks í Þorlákshöfn. Á meðal nýrra greina nú er keppni í dorgveiði og sandkastalagerð. Keppni í kökuskreytingum er líka á dagskránni.

Þétt dagskrá er alla mótsdagana og skemmtun á kvöldin þar sem margt af þekktasta tónlistarfólki landsins kemur fram. Þegar hafa boðað komu sína Jói Pé og Króli, Herra Hnetusmjör og Flóni, Jón Jónsson og hljómsveitin Between Mountains, Young Karin, Míó Tríó, DJ Dóra Júlía og fleiri. Hin landsþekkta Lúðrasveit Þorlákshafnar kemur svo að sjálfsögðu fram á mótinu.

Skráning fer fram á heimasíðu mótsins og þar fást ennfremur frekari upplýsingar um mótið: https://www.ulm.is/ þegar þátttakendur frá HSV skrá sig inn kemur mótframlagið frá félaginu sjálfkrafa inn. Á svæðinu verður svo sérstakt samkomutjald, bekkir, borð og murikkupönnur til afnota fyrir þátttakendur HSV og fjölskyldur þeirra. Einnig hefur verið stofnaður facebook hópur: HSV á unglingalandsmót Þorlákshöfn. https://www.facebook.com/groups/281162465953880/

Sæbjörg
bb@bb.is

DEILA