Tveir menn féllu í sjóinn við Stóru-Ávík

Trékyllisvík.

Samkvæmt fréttaskeyti frá Jónasi Guðmundsyni frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörgu féllu tveir menn í sjóinn við Stóru-Ávík um hálfníuleytið í morgun, og voru björgunarsveitir auk björgunarskips frá Skagaströnd kallað út til bjargar. Svo virðist sem mennnirnir hafi verið í klettum þegar annar þeirra féll í sjóinn og hinn fer honum til bjargar en fellur þá sjálfur. Rúmri hálfri klukkustund eftir að útkall barst voru fyrstu björgunarmenn komnir á staðinn og fóru þeir niður að mönnunum og náðu þeim upp. Voru þeir hraktir og kaldir eftir volkið í sjónum. Rúmlega 20 björgunarmenn tóku þátt í aðgerðinni og voru fleiri á leið á svæðið en voru afturkallaðir.

-Gunnar

DEILA