3,6 milljónir í samfélagsstyrki

Elías Jónatansson orkubússtjóri (t.v.) með hluta styrkþeganna.

Formleg afhending samfélagsstyrkja Orkubús Vestfjarða fór fram í morgun í húsnæði OV að Stakkanesi Ísafirði, Eyrargötu Patreksfirði og Skeiði 5 Hólmavík. Alls bárust 55 umsóknir og að þessu sinni voru veittir 43 styrkir samtals að fjárhæð 3.600.000 kr.

 

Þeir sem hlutu styrk að þessu sinni voru:

  • Blakdeild Vestra: Blakboltar og körfur fyrir bolta – 50.000 þús. kr.
  • Samgöngufélagið: Búnaður til útvarpsútsendinga í veggöngum – 100.000 þús. kr.
  • Héraðssamband Vestfirðinga: Áhaldakaup – 100.000 þús. kr.
  • Björgunarsveitin Björg Suðureyri: Tækjabúnaður í björgunarbát – 250.000 þús. kr.
  • Héraðssamband Vestfirðinga, HSV: Fræðsluverkefni – 50.000 þús. kr.
  • Héraðssamband Vestfirðinga, HSV: Brettaæfingar í íþróttaskóla HSV – 50.000 þús. kr.
  • Sunnukórinn: Söngdagskrá  í tilefni 100 ára fullveldis Íslands – 50.000 þús. kr.
  • Foreldrafélag leik- og grunnskóla Önundarfjarðar: Gönguskíði fyrir leik-og grunnskóla – 100.000 þús. kr.
  • Ungmennafélagið Grettir Flateyri: Efniskaup og smíði á gönguskíðaspori – 50.000 þús. kr.
  • Íþróttafélagið Vestri: Siðareglur og jafnréttisáætlun – 50.000 þús. kr.
  • Björgunarsveitin Ernir: Ljósbúnaður á snjóbíl – 100.000 þús. kr.
  • Víkingar á Vestfjörðum kt. 480104-3580: Viðhald á hátíðarsvæði Þingeyringa – 100.000 þús. kr.
  • Björgunarfélag Ísafjarðar: Endurbætur á sjúkraföngum og persónubúnað – 100.000 þús. kr.
  • Sæfari,félag áhugamanna um sjósport á Ísafirði: Ungmennastarf – 100.000 þús. kr.
  • Hestamannafélagið Stormur: Barna og unglingastarf – 50.000 þús. kr.
  • Foreldrafélag Grunnskólans í Bolungarvík: Örnámskeið fyrir nemendur og foreldra – 50.000 þús. kr.
  • Ungmennafélag Bolungarvíkur: Búnaðarkaup – 100.000 þús. kr.
  • Knattspyrnufélagið Hörður: Íslandsmót 5fl. o.fl – 50.000 þús. kr.
  • Laufey Eyþórsdóttir: Stuðningur við fólk á einhverfurófi  – 50.000 þús. kr.
  • Leikfélag Menntaskólans á Ísafirði: Leiksýning – 100.000 þús. kr.
  • Björgunarsveitin Tindar Hnífsdal: Uppfærsla á fyrstuhjálparbúnað – 100.000 þús. kr.
  • Björgunarsveitin Sæbjörg á Flateyri: Þakviðgerð – 100.000 þús. kr.
  • Elfar Logi Hannesson: Leiklistarsaga Dýafjarðar – 50.000 þús. kr.
  • Kómedíuleikhúsið: Einar Guðfinnsson söguleg leiksýning – 50.000 þús. kr.
  • Act alone: Leiklistarhátíðin Act alone 2018 – 50.000 þús. kr.
  • Höfrungur leikdeild: Uppsetning á Ronju Ræningjadóttur – 50.000 þús. kr.
  • Heilsubærinn Bolungarvík: Farþegahjólakaup – 100.000 þús. kr.
  • Sköpunarhúsið 72 ehf:  Húsið-House of Creativity – 50.000 þús. kr.
  • Sjómannadagsráð Patreksfjarðar: Sjómannadagurinn á Patreksfirði  – 200.000 þús. kr.
  • Björgunarsveitin Blakkur: Lagfæring á bíl – 200.000 þús. kr.
  • Blús milli fjalls og fjöru.: Tónlistarhátíð – 50.000 þús. kr.
  • Sundfélagið Grettir og Hollvinafélag Gvendarlaugar hins góða: Hleðsla umhverfis Gvendarlaug  – 50.000 þús. kr.
  • Gunnar Smári Jóhannesson: Leiklistarnámskeið fyrir börn og unglinga – 50.000 þús. kr.
  • Ungmennafélagið Geislinn:  – 100.000 þús. kr.
  • Björgunarsveitin Dagrenning Hólmavík: Endurnýjun tölvubúnaðar – 150.000 þús. kr.
  • Ungmennafélagið Leifur heppni: Uppsetning og kaup á klórkerfi – 50.000 þús. kr.
  • Ungmennafélagið -Afturelding-(UMFA): Barna-og unglingastarf – 100.000 þús. kr.
  • Albert Páll Sigurðsson: Gera upp Ólafarbrunn í Flatey – 50.000 þús. kr.
  • Ungmennafélagið Neisti: Kaup  á róðravél  – 50.000 þús. kr.
  • Skíðafélag Strandamanna: Æfingaferð til Svíþjóðar með krakka – 50.000 þús. kr.
  • Björgunarsveitin Björg Drangsnesi: Snjóflóðabakpokar fyrir vélsleða – 150.000 þús. kr.
  • Nemendafélag Reykhólaskóla: Ungmennahelgi Laugum í Sælingsdal  – 100.000 þús. kr.
  • Leikfélag Hólmavíkur: Leiksýning – 50.000 þús. kr.

 

DEILA