ASÍ segir forsendur kjarasamninga brostnar

Forsendur kjarasamninga eru brostnar að mati ASÍ en samkvæmt ákvæði í samningunum koma þeir til endurskoðunar fyrir lok þessa mánaðar. Þetta kemur fram í tilkynningu miðstjórnar ASÍ.

Að óbreyttu er það mat ASÍ að forsendur um að launastefna kjarasamninganna hafi verið stefnumarkandi hafi ekki gengið eftir. Því er heimild til uppsagnar þeirra fyrir lok febrúar enn í gildi.

Vegna þessarar stöðu hefur miðstjórn ASÍ ákveðið að boða til formannafundar aðildarfélaga ASÍ miðvikudaginn 28. febrúar þar sem farið verður yfir málið og ákvörðun tekin um viðbrögð verkalýðshreyfingarinnar.

DEILA