Lionsklúbburinn býður upp á blóðsykurmælingu

Blóðsykurmæling er einföld og tekur örskamma stund.

Lionsklúbbur Ísafjarðar  býður uppá fría blóðsykurmælingu í verslunum Nettó og Bónuss fimmtudaginn 15. febrúar frá klukkan 16 til 18. Klúbburinn hvetur fólk til að nýta þetta tækifæri. Sykursýki er alvarlegur sjúkdómur sem að getur verið til staðar án þess að fólk geri sér grein fyrir því.

Lionsklúbburinn fer með þetta verkefni með stuðningi félaga í Hjúkrunar- og Sjúkraliðafélagi Vestfjarða sem sjá munu um mælingarnar.

Talið er að hundruð manna á Íslandi gangi með syk­ur­sýki án þess að vita það. Þessi sjúk­dóm­ur legg­ur fólk hljóðlega að velli og er án ein­kenna lengi fram­an af en get­ur valdið blindu og eyðilagt blóðrás­ina í fót­um ef hann grein­ist ekki fljótt. Grein­ing­in er ein­föld og einn blóðdropi get­ur bent til að að ástæða sé til að leita lækn­is.

Sam­kvæmt reynslu Lionsklúbbs Ísafjarðar finn­ast yf­ir­leitt í hverri skimun tveir til fjór­ir einstaklinar sem ástæða er að skoða nán­ar.

DEILA