Landstólpi sem vekur athygli á byggðamálum

Landstólpinn, samfélagsviðurkenning Byggðastofnunar, er viðurkenning sem Byggðastofnun veitir árlega á ársfundi sínum. Viðurkenningin er hvatning, því hugmyndin að baki er að efla skapandi hugsun og bjartsýni.

Landstólpinn er veittur einstaklingi, fyrirtæki eða hóp/verkefni á vegum fyrirtækis eða einstaklinga, fyrir framtak sem vakið hefur athygli á byggðamálum, landsbyggðinni í heild, eða einhverju tilteknu byggðarlagi og þannig aukið veg viðkomandi samfélags.

Byggðastofnun lýsir eftir tillögum um handhafa Landstólpans 2018. Dómnefnd velur úr þeim tillögum sem berast.

Hafa má í huga hvort viðkomandi hafi:

–          gefið jákvæða mynd af landsbyggðinni eða viðkomandi svæði

–          aukið virkni íbúa eða fengið þá til beinnar þátttöku í verkefninu

–          orðið til þess að fleiri verkefni/ný starfsemi verði til

–          dregið að gesti með verkefni eða umfjöllun sinni

Tillögur sendist á netfangið: landstolpinn@byggdastofnun.is fyrir 28. febrúar.

DEILA