Annar flokkur sigraði bikarmótið

Bikarmeistarar Vestra.

Blakið hefur verið í mikilli sókn hér vestra hin síðustu ára, hvort sem um er að ræða kvenna- eða karlalið, eða meistaraflokka eða lið yngri flokka. Vestri sendi þrjú lið á bikarmót 2.-4. flokks í Mosfellsbæ um síðustu helgi. Einnig var skráð lið 3. flokks drengja sem sameinað var með Aftureldingu.

Í sem stystu máli gekk krökkunum vel á mótinu. Vestri varð bikarmeistari í 2. flokki kvenna eftir sannfærandi sigur á Aftureldingu í úrslitaleik. Annar flokkur drengja hafnaði 4. sæti mótsins eftir tvo sigra og tvo tapleiki..

Blandað lið frá Vestra keppti í 4. flokki drengja. Í 3. flokki drengja sameinuðu
Vestri og Afturelding krafta sína. Bæði þessi lið komust í úrslitaleikinn, en hjá
3. og 4. flokki verða úrslitaleikirnir á sama tíma og bikarúrslit fullorðinna
helgina 9.-11. mars og krakkarnir fá tækifæri til að spila alvöru úrslitaleik við
bestu aðstæður.

DEILA