„Stödd á þeim árstíma þar sem illviðri eru að jafnaði tíðust“

Úrkomulítið í dag en snjókoma í kortunum.

Það verður norðaustanátt á Vestfjörðum í dag, 13-20 m/s og él, en snjókoma í nótt. Dregur úr ofankomu seint á morgun. Hiti um og undir frostmarki.

Í hugleiðingum veðurfræðings er varað við austan hvassviðri eða stormi á suðurhelmingi landsins og verður hvassast allra syðst. Úrkomusvæði gengur betur inn á land eftir því sem líður á daginn og úr því kemur rigning eða slydda á láglendi, en snjókoma á heiðum. Fram eftir degi verður vindur heldur hægari norðanlands og úrkomulítið þar, en það hvessir einnig á þeim slóðum í kvöld og nótt með ofankomu.

Áfram er útlit fyrir hvassa austanátt á morgun og slyddu eða snjókomu. Mun hægari vindur og úrkomulítið sunnan- og suðvestanlands og er það stund milli stríða á þeim landsvæðum.

Á miðvikudag er síðan útlit fyrir að vindur hafi snúist til norðlægari áttar. Þá er gert ráð fyrir norðaustan hvassviðri eða stormi og nær sá vindur til alls landsins. Snjókoman á miðvikudaginn verður hins vegar nær eingöngu bundinn við norðan- og austanvert landið og gæti orðið nokkuð þéttur hríðarbylur þegar verst lætur.

„Veðrið fyrripart þessarar viku er nógu slæmt til að geta haft truflandi áhrif á ýmsar athafnir, til dæmis ferðalög milli landshluta. Við erum nú stödd á þeim árstíma þar sem illviðri eru að jafnaði tíðust á Íslandi. Mögulega er það hughreystandi fyrir einhverja að veðrið getur hæglega orðið mun verra en útlit er fyrir fyrripart vikunnar sem nú er að hefjast,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings um veðrið næstu daga.

DEILA