Fimmtudagur 17. apríl 2025

Setja sér stefnu í kjölfar #ískuggavaldsins

Auglýsing

Bolungarvíkurkaupstaður ætlar að mynda sé stefnu og viðbragðsáætlun vegna eineltis, ofbeldis og kynferðislegrar og kynbundinnar áreitni. Þetta kemur fram í samþykkt bæjarráðs.  Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga hefur hvatt sveitarstjórnir landsins til að ræða leiðir gegn kynferðisofbeldi og –áreitni í stjórnmálum og á vinnustöðum sveitarfélaga. Halldór Halldórsson, formaður sambandsins, fjallaði á stjórnarfundi þess um frumkvæði stjórnmálakvenna „Í skugga valdsins“ og mikilvægi þess að sveitarfélög láti sig málið varða.

Var á stjórnarfundinum einnig bent á nauðsyn þess, að öll sveitarfélög setji sér formlega stefnu og viðbragðsáætlun vegna eineltis, ofbeldis og kynferðislegrar og kynbundinnar áreitni enda sé slík hegðun ólíðandi með öllu.

smari@bb.is

Auglýsing

Nýtt á BB

Auglýsing
Auglýsing

Fleiri fréttir