„Svo verðuru að hafa eitthvað sexapíl“

Undanfarna 6 daga hafa rúmlega 800 konur, sem eru og hafa verið virkar í stjórnmálum á Íslandi, rætt saman og deilt reynslusögum í lokaða Facebook hópnum „Í skugga valdsins“, um kynjað starfsumhverfi stjórnmálanna.

Konurnar koma úr öllum flokkum, eru á ýmsum aldri, hafa starfað á flestum sviðum stjórnmálanna, á ýmsum tímum og um allt land. Einstakur samhljómur og samstaða hefur einkennt umræður í hópnum. Fjölbreyttar sögur kvennanna, draga upp sláandi mynd af þeim karllæga heimi sem stjórnmálin eru – sögur um kynbundið ofbeldi, áreitni, valdbeitingu og þöggun.

Í sameiginlegri áskorun hópsins, sem var undirrituð af á fimmta hundað stjórnmálakonum, er þess krafist að karlar taki ábyrgð og að stjórnmálaflokkarnir taki af festu á málinu. Þess er krafist að flokkarnir og starfsstaðir stjórnmálafólks  setji sér viðbragðsreglur og lofi konum því að þær þurfi ekki að þegja og að þær muni fá stuðning .

Með undirskriftarlistanum fylgja 136 sláandi sögur af reynslu kvenna sem taka þátt í stjórnmálum. Hér að neðan eru nokkrar þeirra:

Ég gæti talið upp ótal atvik, þar sem lítið var gert úr mér, mér ýtt til hliðar og sagt hreinlega að ég hefði ekki vit á ýmsu, sem ég vissi fullvel að ég var betur inn í en sá sem talaði. Ég lenti í ágangi, símtölum og var króuð af í hornum þar sem ég t.d í eitt sinn var gert ljóst að ég ætti að vera“ góð“ við viðkomandi, þá myndi mér ganga betur. Treysti mér ekki til að segja frá alvarlegusta atvikinu, en það varð í raun til þess að ég hætti nánast afskiptum af pólitík og flutti úr bænum mínum. Þegar umræðan í kringum #metoo# hófst, gróf ég í skúffunni minni og tók upp gullfallegt armband sem ég hafði ekki notað síðan þetta allt gekk yfir. Það er núna á úlnliðnum mínum og ég vil muna, fyrirgefa ungu stúlkunni barnaskapinn og trúgirnina og ég, nú komin að sjötugu, get hætt að bera innra með mér þessa skömm og kenna mér um að ég varð aldrei nema efnileg og skila af mér áratuga langri skömm. Ég var flott ung stúlka og kona og átti ekki að láta brjóta mig niður.

Eftir umræðu í borgarstjórn þar sem ég talaði fyrir því að borgarstjórn álykta gegn klámráðstefnu sem var fyrirhuguð á vegum erlendra aðila. Þverpólitísk samstaða náðist en þegar ég kom heim biðu mín grófar nauðgunarhótanir sem lögreglan m.a. rak í tölvu starfsmanna á líkamsrætastöð, engin leið var að finna út hver bæri ábyrgð á þessu. Næstu mánuði var ég extra vör um mig enda bjó ég á jarðhæð og var oft ein heima með lítið barn. Ég lét eins og þetta hefði ekki haft áhrif á mig út á við en mér stóð ekki á sama og hugsaði mig tvisvar um áður en ég fór í umdeild mál. Ég hélt samt áfram að berjast í sömu málum og lét þetta ekki stoppa mig en ég vissi nú að fórnarkostnaðurinn gæti verið öryggi mitt.

Var með þáverandi kærastanum mínum á fjármálaráðstefnu sambands íslenskra sveitaf. Á fimmtudeginum var fengið sér öl; mikil gleði í mannskapnum. Èg þarf að fara upp á hótelherbergi; fer í lyftuna – stjórnmálamaðurinn hoppar inn í lyftuna. Við spjöllum, hann lætur mig vita að honum þykir ég séxý, króar mig af í lyftunni, strikur upp kjólinn endar á brjóstinu og ég frosin þegar hann rekur upp mig tunguna. Lyftan stoppar og hann biður mig að koma með inn á hæðina því hann þurfi bara að fá að ríða mér- ég sé búin að stríða honum nóg og lengi.
Sem betur fer kom kona að lyftunni og spurði hvort ég væri með dömubindi. Èg laug og sagðis vera með upp à herbergi. Hún kom með mér upp; marg spurði hvort allt væri í lagi þvi ég labbaði svo hratt. “Fann ekki” bindi og dróg hana með mér niður þar sem við gengum beint á konuna hans sem spurði eftir manninum sínum… èg ung og hrædd – sagðist bara ekkert eftir að hafa séð hann.

Karlframbjóðandi/þingmaður tók að sér að vera ræðumaður kvöldsins á eldrikarlakvöldi í íþróttafélagi. Hann ákveður að þar sé tækifærið til að deila visku sinni og háttsemi og útnefna þá samstarfskonu á þingi sem hann vildi helst sofa hjá. Þegar hann var búinn að því bætti hann í og sagði helsta kost lágvaxinnar samflokkskonu sinnar vera þá að hún þyrfti ekki einu sinni að fara á hnén fyrir formanninn…

Mínar sögur skipta tugum af alls kyns hótunum, áreitni, og niðrandi og kvenfjandsamlegum ummælum. Geiri heitinn í Goldfinger hvatti til að karlar tækju sig saman og nauðguðu mér auk þess sem hann hvatti til mótmæla við heimili mitt. Vegna baráttu gegn súlustöðum í Reykjavík sat ég undir alls kyns hótunum frá „hagsmunaaðilum“ ofl ofl.
Mikið var skrifað um þessi ummæli Gillz á sínum tíma í minn garð og fannst sumum þetta mjög fyndið..
„Steinunn Valdís Óskarsdóttir, alþingismaður. Steinunn er portkonan sem vildi breyta orðinu ráðherra í ráðfrú fyrir konur. Steinunn þarf lim og það strax. Á hana Steinunni Valdísi dugar ekkert annað en lágmark tveir harðir og munu Buka og Yao taka þetta verkefni að sér.““gefa þessum leiðinda rauðsokkum einn granítharðan“ „þessar dömur eru flestallar ógeðslegar auk þess að vera geðsjúklingar“ um feminista „Steinunn (Valdís) er portkona“.. „á hana dugar ekkert minna en lágmark tveir harðir“ um Steinunni Valdísi Óskarsdóttur.

 

Áskorun til stjórnmálanna

  1. Kynferðisofbeldi og áreitni á sér stað í stjórnmálum rétt eins og annars staðar í samfélaginu.
  2. Meðfylgjandi eru frásagnir kvenna sem lýsa reynslu sinni.
  3. Það verður að verða breyting á. Við krefjumst þess að allir karlar taki ábyrgð, að allir stjórnmálaflokkar taki af festu á málinu, setji sér viðbragðsreglur og lofi konum að þær þurfi ekki að þegja meir því þær muni fá stuðning.

 

Undirskriftir:

  1. Aðalheiður Björt Unnarsdóttir, varabæjarfulltrúi Framsóknar, Fljótsdalshéraði
  2. Adda María Jóhannsdóttir bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Hafnarfirði
  3. Ágústa Ragnarsdóttir, bæjarfulltrúi í Ölfusi fyrir Framfarasinna.
  4. Albertína Friðbjörg Elíasdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar
  5. Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri í Hveragerði og formaður sveitarstjórnarráðs Sjálfstæðisflokksins.
  6. Alfa Dröfn Jóhannsdóttir, áheyrnafulltrúi frístundaráðs Akureyrar og aðalmaður í flokksráði VG.
  7. Álfheiður Eymarsdóttir kafteinn Pírata á Suðurlandi og varaþingmaður.
  8. Álfheiður Ingadóttir, varaþingmaður Vinstri grænna, fyrrv. þingmaður og ráðherra.
  9. Alma Lisa Johannsdottir, VG
  10. Andrea Eyland Sóleyjar- og Björgvinsdóttir fyrrverandi kosningastýra í Reykjavík. Samfylkingin.
  11. Andrea Gunnarsdóttir, stjórnarmeðlimur Sambands ungra Sjálfstæðismanna.
  12. Andrea Hjálmsdóttir fyrrverandi bæjarfulltrúi VG á Akureyri
  13. Andrea Ósk Sigurbjörnsdóttir, innanstarfsfulltrúi UVG
  14. Aníta Rut Hilmarsdóttir, Sjálfstæðisflokkurinn
  15. Anna Aurora Waage Óskarsdóttir Framkvæmtastjóri og í stjórn Framsóknarflokksins í Mosfellsbæ.
  16. Anna Bara Ólafsdóttir Framkvæmdarstjori Miðflokkurinn
  17. Anna Björg Níelsdóttir bæjarfulltrúi í Sveitarfélaginu Ölfusi fyrir Framfarasinna
  18. Anna Kolbrún Árnadóttir, þingmaður Miðflokksins
  19. Anna Kristín Sigurðardóttir fyrrum varaþingmaður Alþýðubandalagsins
  20. Anna Lísa Björnsdóttir VG
  21. Anna Lóa Ólafsdóttir bæjarstjórn Bein leið, Reykjanesbær
  22. Anna Margrét Guðjónsdóttir, fv. varaþingkona Samfylkingarinnar, í stjórn fulltrúaráðs Samfylkingarinnar í Reykjavík.
  23. Anna Ólafsdóttir Björnsson, Kvennalistinn og VG
  24. Anna Pála Sverrisdóttir, fyrrum formaður Ungra jafnaðarmanna og fyrrum varaþingmaður Samfylkingarinnar.
  25. Anna Sigríður Guðnadóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Mosfellsbæ.
  26. Anna Sigrún Baldursdóttir, fyrrum aðstoðarmaður ràðherra, Samfylkingin
  27. Arna Ír Gunnarsdóttir bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Árborg.
  28. Arna Lára Jónsdóttir, bæjarfulltrúi Í-listans í Ísafjarðarbæ og formaður bæjarráðs
  29. Ása Elín Helgadóttir, framkvæmdarstjórn UJ, Samfylkingin.
  30. Ása Jóhanns, Kvennalistanum og Sósíalistaflokknum
  31. Ása Lind Finnbogadóttir fyrrverandi frambjóðandi Dögunar til Alþingis en er skráð bæði í Pírata og Samfylkingu
  32. Ása Richardsdóttir Samfylkingin, bæjarfulltrúi Kópavogi/ varaforseti bæjarstjórnar
  33. Ásdís Birna Gylfadóttir fyrrum viðburða- og fræðslustýra Ungra Jafnaðarmanna
  34. Ásdís Bjarnadóttir 4 sæti Miðfloknum Suðurkjördæmi.
  35. Ásgerður K. Gylfadóttir, bæjarfulltrúi í Sveitarfélaginu Hornafirði og varaþingmaður fyrir Framsóknarflokkinn í Suðurkjördæmi.
  36. Áshildur Hlón Valtýsdóttir, fyrrum varabæjarfulltrúi Bjartrar framtíðar á Akueyri
  37. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, þinmaður, ritari og starfandi varaformaður Sjálfstæðisflokkurinn
  38. Áslaug Friðriksdóttir borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksin
  39. Áslaug Hulda Jónsdóttir. Formaður bæjarráðs Garðabæjar. Sjálfstæðisflokkur.
  40. Ásrún Birgisdóttir, ritari Félags sjálfstæðismanna í Nes- og Melahverfi í Reykjavíl
  41. Ásrún Helga Kristinsdóttir bæjarfulltrúi Í Grindavík fyrir Framsóknarflokkinn
  42. Ásrún Ýr Gestsdóttir, aðalmaður í flokksráði og varaformaður í svæðisfélagi VG, Akureyri.
  43. Ásta Dís Guðjóns, formaður Sjálfsbjargar á höfuðborgarsvæðinu.Var í 2 sæti Rvk-N fyrir Dögun 2016 og í stjórn Dögunar.Sit í bráðabirgðastjórn Sósíalistaflokksins.
  44. Ásta F. Flosadóttir, hef setið í sveitarstjórn Grýtubakkahrepps síðan 2006.
  45. Ásta Guðrún Helgadóttir, fyrrverandi þingmaður pírata
  46. Ásta Hlín Magnúsdóttir, fyrrverandi formaður Sambands ungra framsóknarmanna.
  47. Ásta Hlín Magnúsdóttir, fyrrverandi formaður Sambands ungra framsóknarmanna.
  48. Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, fv. bæjarfulltrúi og fv.varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins
  49. Ásta Stefánsdóttir, bæjarstjóri og bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Árborg
  50. Ásthildur Ósk Ragnarsdóttir, er í stjórn Bjartar framtíðar á landsvísu sem og í BF Akranesi. Sit í ráðum og nefndum hjá Akraneskaupstað fyrir BF
  51. Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri og formaður kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í NV kjördæmi.
  52. Auður Alfa Ólafsdóttir, framkvæmdastjórn Samfylkingarinnar
  53. Auður Alfífa Ketilsdóttir VG
  54. Auður Lilja Erlingsdóttir. VG
  55. Berglind Häsler, VG, í flokksráði og kjördæmisráði NA- kjördæmi,
  56. Bergljót Kristinsdóttir, formaður Samfylkingarinnar í Kópavogi og varabæjarfulltrúi.
  57. Bergþóra Benediktsdóttir, framkvæmdastjóri þingflokks, VG.
  58. Birgitta Jónsdóttir, fv. Þingflokksformaður Borgarahreyfingarinnar, Hreyfingarinnar og Pírata
  59. Birna Hafstein, Viðreisn
  60. Birna Lárusdóttir, Sjálfstæðisflokki. Fyrrverandi bæjarfulltrúi og forseti bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar, fyrrverandi varaþingmaður í NV-kjördæmi.
  61. Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri Viðreisnar
  62. Birta Jóhannesdóttir Íbúahreyfingin í Mosfellsbæ,
  63. Bjarkey OIsen Gunnarsdóttir, alþingsmaður, VG
  64. Bjarnveig Ingvadóttir, Framsóknarflokkurinn, ritari Landsambands Framsóknarkvenna
  65. Björg Eva Erlendsdóttir, Framkvæmdastjóri VG og fyrrv. stjórnarfulltrúi hér og þar
  66. Björk Guðjónsdóttir, fv. forseti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar og fv. alþingismaður Sjálfstæðisflokksins.
  67. Björk Vilhelmsdóttir fyrrverandi borgarfulltrúi Samfylkingarinnar og Reykjavíkurlistans
  68. Björt Ólafsdóttir. Ráðherra Björt Framtíð
  69. Borghildur Sölvey Sturludóttir varabæjarfulltrúi BF í Hafnarfirði
  70. Bryndís Bjarnadóttir, Sjálfstæðisflokkurinn
  71. Bryndís Friðgeirsdóttir fyrrverandi bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Ísafjarðarbæ, fv. formaður Kvennahreyfingar Samfylkingarinnar og fv. formaður Samfylkingarinnar á N Vestfjörðum
  72. Bryndís Gunnlaugsdóttir, fv. bæjarfulltrúi, fv. formaður SUF og fv. varaþingmaður Framsóknar
  73. Bryndís Haralds þingkona og bæjarfulltrúi, Sjálfstæðisflokkurinn.
  74. Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir, fv. Varaborgafulltrúi Samfylkingarinnar
  75. Bryndís Sigurðardóttir, fyrsti formaður Samfylkingar í Hveragerði og á lista Samfylkingar í Suðurkjördæmi fyrir nokkrum kosningum
  76. Brynhildur Björnsdóttir á lista VG Rvk Norður
  77. Brynhildur Pétursdóttir fyrrum þingkona Bjartrar framtíðar
  78. Brynhildur S. Björnsdóttir, Björt framtíð
  79. Bylgja  Bára Bragadóttir, stjórn Sjálfstæðisfélags Mosfellsbæjar
  80. Claudia Overesch, Alþýðufylkingin
  81. Dagbjört Hákonardóttir, fv. gjaldkeri og meðstjórnandi Ungra Jafnaðarmanna, Röskvukona og fv. formaður Ungra Evrópusinna
  82. Dagbjört Höskuldsdóttir, fyrrv varaþingmaður fyrir Framsóknarflokkinn og í flestum stjórnum og ráðum flokksins og sveitarstjórnarmaður.
  83. Dagbjört Pálsdóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar á Akureyri
  84. Dagný Jónsdóttir, fv. þingmaður Framsóknarflokksins
  85. Dagrún Ósk Jónsdóttir, ritari UVG
  86. Diljá Ámundadóttir, fv. varaborgarfulltrúi BF.
  87. Dóra Björt Guðjónsdóttir, fyrrverandi formaður Ungra Pírata, 2. varaþingmaður Pírata
  88. Dóra Magnúsdóttir, varaborgarfulltrúi í Rvk. Samfylking
  89. Dóra Sif Tynes, fyrrverandi varaþingmaður Viðreisnar
  90. Drífa Hjartardóttir, fyrrv. sveitarstjórnarmaður og þingmaður Sjálfstæðisflokksins
  91. Drífa Sigfúsdóttir, MS í mannauðsstjórnun, f.v. forseti bæjarstjórnar/varabæjarstjóri og varamaður á Alþingi, stjórn LFK, framkvæmdastjórn o.fl. Framsóknarflokki
  92. Drífa Snædal, fyrrverandi framkvæmdastjóri Vg.
  93. Eirný Vals, Framsóknarflokki, jafnréttisfulltrúi, ýmsar nefndir og ráð.
  94. Elfa Hlín Pétursdóttir, bæjarfulltrúi og oddviti Seyðisfjarðarlistans
  95. Elín Jóhannsdóttir hef gengt mörgum trúnaðarstörfum fyrir Framsóknarflokkinn à öllum stigum
  96. Elín Jóhannsdóttir, fyrrverandi varaþingmaður Framsóknarflokksins
  97. Elín Jónsdóttir, formaður sjálfstæðisfélagsins í Árbæ, selás og ártúni og meðlimur í stjórn varðar
  98. Elín Káradóttir, formaður Sjálfstæðisfélagsins í Hveragerði.
  99. Elín Margrét Böðvarsdóttir, Sjálfstæðisflokkurinn
  100. Elín Matthildur Kristinsdóttir, Björt framtíð
  101. Elín Oddný Sigurðardóttir, varaborgarfulltrúi og ritari VG
  102. Elín Ýr Arnar Hafdísardóttir fyrrv formaður framkvæmdaráðs Pírata og núverandi formaður Pírata í Hafnarfirði.
  103. Elísa Björg Grímsdóttir, meðlimur Stúdentaráðs Háskóla Íslands og Röskvuliði, samtök félagshyggjufólks innan Háskóla Íslands
  104. Elísabet Brynjarsdóttir, oddviti Röskvu
  105. Elísabet Indra Ragnarsdóttir, VG
  106. Elisabet Inga Sigurðardóttir, varaformaður Heimdallar. Sjálfstæðisflokkur.
  107. Ella Þóra Jónsdottir Framsóknarflokkurinn.
  108. Elsa Kristjánsdóttir, gjaldkeri Pírata
  109. Elsa Lára Arnardóttir fyrrverandi þingkona Framsóknarflokksins.
  110. Elva Dögg Ásud. Kristindóttir oddviti VG í Hafnarfirði og bæjarfulltrúi í bæjarstjórn
  111. Erla Björg Guðmundsdóttir, Samfylkingunni
  112. Erla Björk Þorgeirsdóttir, fyrrum varabæjarfulltrúi fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Kópavogi.
  113. Erla Guðrún Gísladóttir. VG
  114. Erla Hlynsdóttir, framkvæmdastjóri Pírata
  115. Erna Lína Örnudóttir Baldvinsdóttir í framkvæmdastjórn Alþýðufylkingarinnar.
  116. Esther Ösp Gunnarsdóttir, bæjarfulltrúi Fjarðalistans í Fjarðabyggð
  117. Eva Dögg Fjölnisdóttir, Björt framtíð
  118. Eva Dögg Guðmundsdóttir, stjórnarmeðlimur í Stjórn Samfylkingarfélags Reykjavíkur SffR
  119. Eva Einarsdottir, varaborgarfulltrúi og fv varaþingkona, Björt Framtíð
  120. Eva H. Baldursdóttir, varaborgarfulltrúi samfylkingarinnar og formaður félags frjálslyndra jafnaðarmanna
  121. Eva Hrund Einarsdóttir bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins á Akureyri.
  122. Eva Indriðadóttir, fyrrverandi formaður Ungra jafnaðarmanna.
  123. Eva Magnúsdóttir, fyrrverandi formaður fræðslunefndar í Mosfellsbæ og fyrrverandi varabæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.
  124. Eva Margrét Kristinsdóttir, fv. varabæjarfulltrúi og fv. formaður ungra jafnaðarmanna á Seltjarnarnesi.
  125. Eva Pandora Baldursdóttir, fráfarandi þingmaður og oddviti Pírata í Norðvesturkjördæmi.
  126. Eydís Ásbjörnsdóttir, bæjarfulltrúi Fjarðalistans í Fjarðabyggð.
  127. Eydís Bára Jóhannsdóttir, formaður Framsóknarfélags Húnaþings vestra.
  128. Eydís Blöndal, önnur varaþingkona VG í Reykjavík suður.
  129. Eygló Björg Jóhannsdóttir, formaður kjördæmasambands framsóknarmanna í Norðausturkjördæmi.
  130. Fanndís Birna Logadóttir, varamaður Stúdentaráðs Háskóla Íslands og meðstjórnandi Röskvu, samtök félagshyggjufólk innan Háskóla Íslands
  131. Freyja Steingrímsdóttir, stjórnmálaráðgjafi og meðlimur í Samfylkingunni
  132. Fríða Matthíasdóttir, forseti bæjarstjórnar Vesturbyggðar. Sjálfstæðisflokkurinn.
  133. Fríða Rós Valdimarsdóttir, fyrrverandi frambjóðandi Kvennalistans.
  134. Fríða Stefándóttir, Bæjarfulltrúi í Sandgerði fyrir Samfylkinguna
  135. Geirlaug Jóhannsdóttir, sveitarstjórnarfulltrúi í Borgarbyggð, Samfylking
  136. Gerður Jónsdóttir stofnfélagi í Miðflokknum. Fyrrverandi formaður Landssambands framsóknarkvenna, fyrrverandi bæjarfulltrúi Framsóknar á Akureyri
  137. Gerður Pálsdóttir fjölskyldunefnd Mosfellsbæjar, Samfylkingin
  138. Greta Björg Egilsdóttir varaborgarfulltrúi Framsóknar og flugvallarvina og nú síðast á lista Miðflokksins
  139. Gréta Ingþórsdóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri þingflokks Sjálfstæðisflokksins
  140. Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir borgarfulltrúi Framsóknar og flugvallarvina
  141. Guðlaug Svala S Kristjánsdóttir, forseti bæjarstjórnar, Björt framtíð Hafnarfirði
  142. Guðný Aradóttir, varabæjafulltrúi í Kópavogi ’94-’98 fyrir Alþýðubandalagið og síðan virk í samfylkingingu eftir það.
  143. Guðný Birna, Samfylkingunni, bæjarfulltrúi Reykjanesbæ
  144. Guðný Guðbjörnsdóttir, fv. þingkona Kvennalista /Samfylkingar.
  145. Guðný Hildur Magnúsdóttir, VG, fyrrverandi formaður VG á Vestfjörðum og núverandi stjórnarkona VG á Vestfjörðum
  146. Guðný Ljósbrá Hreinsdóttir viðburðarstjóri Röskvu samtök félagshyggjufólks innan Háskóla Íslands
  147. Guðrún Ágústa þórdísardóttir fyrrverandi varaþingmaður Pírata
  148. Guðrún Ágústsdóttir, aðal-eða varaborgarfulltrúi frá 1978-1999. Forseti borgarstjórnar frá 1994-1999. VG
  149. Guðrún Arna Kristjánsdóttir, fyrrverandi varabæjarfulltrúi Garðabæ, Samfylkingin
  150. Guðrún Birna le Sage, fyrrverandi formaður Hallveigar, Ungra jafnaðarmanna í Reykjavík
  151. Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir Sjálfstæðisflokkurinn
  152. Guðrun Erla Geirsdottir ein af stofnendum Kvennaframboðsins og Samfylkingarinnar og fyrverandi varaborgarfulltr
  153. Guðrún Inga Ingólfsdottir, hagfræðingur og fyrrverandi varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins
  154. Guðrún Íris Valsdóttir, Fyrrverandi bæjarfulltrúi Fjarðalistans í Fjarðabyggð
  155. Guðrún Jóna Jónsdóttir, fyrrum forman Ungra jafnaðarmanna
  156. Guðrún Katrín fyrrverandi flokkstjórnarfulltrúi Samfylkingarinnar og fyrrverandi bæjarstjótnarmaður á Seyðisfirði fyrir Samfylkinguna.
  157. Guðrún M. Ó. Steinunnardóttir. Fyrrverandi bæjarfulltrúi Fjarðalistans í Fjarðabyggð.
  158. Guðrún Ögmundsdóttir, fv. Borgarfulltrúi R lista, fv.  Alþingismaður Kvennalista og Samfylkingar
  159. Guðveig Eygloardottir oddviti Framsóknar í sveitarstjórn Borgarbyggðar.
  160. Gyða Dröfn Hjaltadóttir, formaður Ungra vinstri grænna
  161. Gyða R. Stefánsdóttir, Sjálfstæðisflokkurinn
  162. Hafdís Gunnarsdóttir, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins í NV-kjördæmi og formaður fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins í Ísafjarðarbæ.
  163. Halla B. Þorkelson, fv. Formaður Samfylkingarinnar í Grafarvogi
  164. Halla Björk Reynisdóttir, fyrrverandi bæjarfulltrúi Akureyri
  165. Halla Gunnarsdóttir fyrrverandi formaður Hallveigar, ungra jafnaðarmanna í Reykjavík
  166. Halla Gunnarsdóttir, varaþingmaður VG
  167. Halla Signý Kristjánsdóttir þingmaður Framsóknarflokksins
  168. Halla Sigríður Steinólfsdóttir varaoddviti í sveitarstjórn Dalabyggðar og í stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga
  169. Halldóra Baldursdóttir, Fulltrúi gæðamála OR, Miðflokkurinn.
  170. Halldóra Jónasdóttir, einkaþjálfari og flugkona, virk Pírata og frambjóðandi í SV fyrir Pírata 2017.
  171. Halldóra Mogensen – þingkona Pírata
  172. Hanna Birna Kristjánsdóttir, fv ráðherra og borgarstjóri Sjálfstæðisflokksins
  173. Hanna Bjartmars Arnardóttir, fyrrverandi bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar
  174. Hanna Katrín Friðriksson, þingflokksformaður Viðreisnar
  175. Heiða Björg Hilmisdóttir, Varaformaður og borgarfulltrúi, Samfylkingin
  176. Helena Stefánsdóttir, Pírötum
  177. Helga Dögg Björgvinsdóttir, fyrrverandi formaður Landssambands Sjálfstæðiskvenna
  178. Helga Vala Helgadóttir, þingman Samfylkingarinnar.
  179. Henný Hinz Samfylkingu
  180. Herdís Anna Þorvaldsdóttir, varaborgarfulltrúi og varaþingmaður fyrir Sjálfstæðisflokkinn
  181. Herdís Hjörleifsdóttir, 7 sæti í Miðflokknum í Suðurkjördæmi
  182. Herdís Sigurjónsdóttir fyrrverandi bæjarfulltrúi Sjálfstæðismanna í Mosfellsbæ
  183. Hildur Friðriksdóttir, VG.
  184. Hildur Helga Gísladóttir formaður Kjördæmissambands framsóknarmanna í Suðvesturkjördæmi
  185. Hildur Karen Sveinbjarnardóttir, Sjálfstæðisflokki
  186. Hildur Knútsdóttir, fyrrv. varaþingmaður VG.
  187. Hildur Margrétardóttir, formaður Íbúahreyfingarinnar í Mosfellsbæ og 2. varabæjarfulltrúi
  188. Hildur Sverrisdóttir, varaþingmaður, Sjálfstæðisflokki
  189. Hildur Þórisdóttir, varabæjarfulltrúi L- lista á Seyðisfirði og formaður Samfylkingar á Seyðisfirði.
  190. Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir varabæjarfulltrúi Fjarðalistans í Fjarðabyggð
  191. Hjördís Ýr Johnson Sjálfstæðisflokki Bæjarfulltrúi og formaður Umhverfis- og samgöngunefndar Kópavogs
  192. Hólmfríður Bjarnadóttir Pírati
  193. Hólmfríður Garðarsdóttir, aðgerðarsinni víða, m.a. í Samfylkingu og með Kvennalista
  194. Hólmfríður Þórisdóttir stjórn Miðflokksins
  195. Hrefna Guðmundsdóttir, Björt framtíð, á lista bæði í sveitastjórnar- og alþingiskosningum
  196. Hreindís Ylva Garðarsd. Holm, VG
  197. Hulda Sigrún Guðmundsdóttir Bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins Fjarðabyggð
  198. Ída Finnbogadóttir, varaformaður Ungra jafnaðarmanna í Reykjavík
  199. Iðunn Garðarsdóttir, Vinstri græn.
  200. Ilmur Kristjánsdóttir, varaborgarfulltrúi í reykjavík fyrir Bjarta framtið
  201. Inga Auðbjörg Straumland, fyrrverandi varaformaður ungra jafnaðarmanna
  202. Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir, Samfylkingunni
  203. Inga Hrefna Sveinbjarnardóttir, aðstoðarmaður ráðherra. Sjálfstæðisflokki.
  204. Inga María Hlíðar Thorsteinson, Sjálfstæðisflokkurinn
  205. Inga Sæland þingmaður og formaður Flokks fólksins
  206. Inga Þyri Kjartansdóttir fv framkvæmdastjóri Landssambands Framsóknarkvenna, í miðstjórn og varamaður í kjördæmisráði Framsóknarflokks í SV.
  207. Ingibjörg Ingvadóttir, Framsóknarflokki
  208. Ingibjörg Óðinsdóttir, fyrrv. varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins.
  209. Ingibjörg Ólöf Isaksen, bæjarfulltrúi á Akureyri – Framsóknarflokkurinn
  210. Ingibjörg Ólöf Vilhjálmsdóttir, Framsóknarflokki
  211. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Kvennaframboði, Kvennalista, Reykjavíkurlista og Samfylkingu
  212. Ingibjörg Stefánsdóttir, í stjórn fulltrúaráðs Samfylkingarinnar í Reykjavík, fv, varaformaður Samfylkingarfélagsins í Reykjavík og varamaður í framkvæmdastjórn Samfylkingarinnar. Fyrrverandi starfskona Kvennalistans.
  213. Ingibjörg Þórðardóttir, varaþingmaður og alls konar, VG
  214. Íris Árnadóttir varabæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins á Seyðisfirði
  215. Isabel Alejandra Díaz, miðstjórn Ungra jafnaðarmanna og stjórnarmeðlimur Röskvu, samtök félagshyggjufólks innan Háskóla Íslands.
  216. Jasmina Crnac, Oddviti Bjarta framtíðar í Suðurkjördæmi. Einnig fulltrúi velferðarnefndar í Reykjanesbæ fyrir A-lista
  217. Jenný Heiða Zalewski, varaformaður Kvennahreyfingar Samfylkingarinnar.
  218. Jóhanna María Sigmundsdóttir, fyrrum þingmaður Framsóknarflokksins
  219. Johanna Van Schalkwyk, fyrrum bæjarfulltrúi fyrir L-listann, Grundarfirði
  220. Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir, varaþingmaður Samfylkingarinnar í Reykjavík suður.
  221. Jóna Björg Hlöðversdóttir VG
  222. Jóna Björg Sætran, 4 á lista Framsóknar- og flugvallarvina, númer 5 á lista Framsóknarflokksins til alþingiskosinga 2017
  223. Jóna Sæmundsdóttir, bæjarfulltrúi Garðabær Sjálfstæðisflokki
  224. Jóna Sólveig Elínardóttir, varaformaður Viðreisnar.
  225. Jónína Erna Arnardóttir, sveitarstjórnarfulltrúi fyrir Sjálfstæðisflokkinn
  226. Jónína Holm bæjarfulltrúi N listans sem er þverpólitískt framboð í Garði.
  227. Jónína Rós Guðmundsdóttir fyrrum þingkona Samfylkingarinnar
  228. Jónína Sigurðardóttir, Stjórnarmaður í Heimdalli og oddviti Vöku félags lýðræðissinnaðra stúdenta á Menntavísindasviði – Sjálfstæðisflokkurinn
  229. Jónína, A. Sanders, fv. formaður bæjarráðs og fv. stjórnarmaður í stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga, Sjálfstæðisflokkurinn
  230. Jórunn Einarsdóttir fyrrum bæjarfulltrúi og varaþingmaður VG
  231. Júlía Margrét Einarsdóttir, fyrrverandi formađur ungra jafnađarmanna í Reykjavík
  232. Karen Elísabet Halldórsdóttir, bæjarfulltrúi og varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins.
  233. Karólína Helga Símonardóttir, fv. Varaþingkona Bjartrar framtíðar, formaður Íþrótta og tómstundanefndar Hafnarfjarðar. Sinni ýmsum öðrum trúnaðarstörfum fyrir Bjarta framtíð.
  234. Katla Hólm Þórhildardóttir Píratar
  235. Katrín Ósk, varaþingmaður Sjálfstæðisflokkins í SV, varaformaður Stefnis félag ungra í Hafnarfirði og oddviti Vöku, félags lýðræðissinnaðra stúdenta við HÍ.
  236. Katrín Snæhólm Baldursdóttir, fyrrverandi varaþingmaður Borgarahreyfingarinnar.
  237. Kolbrún Birna Hallgrímsdóttir Bachmann, Samfylkingin
  238. Kolbrún Halldórsdóttir fv. þingmaður og ráðherra VG
  239. Kolbrún Jóna Pétursdóttir, bæjarfulltrúi Beinnar Leiðar Reykjanesbæ.
  240. Kristbjörg Þórisdóttir varaþingkona Framsóknarflokksins.
  241. Kristín Elfa Guðnadóttir, ráðsfulltrúi Pírata hjá Reykjavíkurborg.
  242. Kristín María Birgisdóttir formaður bæjarráðs Grindavíkurbæjar, Lista  Grindvíkinga
  243. Kristín Sævarsdóttir varabæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Kópavogi
  244. Kristin Sigfusdottir i flokksraði VG, fyrrum bæjarfulltrui VG i bæjarstjorn a Akureyri.
  245. Kristín Sigurgeirsdóttir varabæjarfulltrúi Akranesi BF.
  246. Kristín Soffía Jónsdóttir borgarfulltrúi Samfylkingarinnar
  247. Kristín Traustadóttir varaþingmaður, Sjálfstæðisflokki
  248. Kristín Þóra Kjartansdóttir, fyrrverandi nefndarfulltrúi VG Akureyri
  249. Kristjana Louise Friðbjarnardóttir Varamaður í stjórn SUF
  250. Lára Björg Björnsdóttir, VG.
  251. Laufey Elísabet Gissurardóttir, fjölskyldunefnd á Seltjarnarnesi, Samfylking
  252. Laufey Líndal Ólafsdóttir, meðlimur í bráðabirgðastjórn Sósíalistaflokks Íslands.
  253. Líf Magneudóttir – borgarfulltrúi vinstri grænna og forseti borgarstjórnar
  254. Lilja Alfreðsdóttir, alþingiskona og varaformaður Framsóknarflokksins
  255. Lilja Hrund Ava Lúðvíksdóttir, stjórn ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík.
  256. Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir. Varaþingkona Framsóknar og stjórnarmeðlimur SUF
  257. Linda Hrönn Þórisdóttir, formaður Landssambands Framsóknarkvenna
  258. Líneik Anna Sævarsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins
  259. Lìsbet Harðardóttir, Samfylking
  260. Lovísa Rósa Bjarnadóttir forseti bæjarstjórnar á Hornafirði, Sjálfstæðisflokki
  261. Margrét Erla Þórsdóttir, viðburðastýra UVG
  262. Margrét Frímanns, Samfylking
  263. Margrèt Gauja Magnúsdóttir. Bæjarfulltrúi í Hafnarfirði. Samfylkingin.
  264. Margrét Gísladóttir, fyrrv. aðstoðarmaður utanríkisráðherra og fyrrv. ráðgjafi forsætisráðherra Framsókn
  265. Margrét Guðjónsdóttir formaður bæjarráðs Seyðisfjarðarkaupstaðar, Sjálfstæðisflokki.
  266. Margrét Jómundsdóttir, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks og Óháðra Bolungarvík.
  267. Margrét Júlía Rafnsdóttir, Bæjarfulltrúi í Kópavogi
  268. Margrét K. Sverrisdóttir fv. varaþingmaður Frjálslynda flokks og síðar borgarfulltrúi Samfylkingar.
  269. Margrét Kristín Helgadóttir, Fyrrverandi bæjarfulltrúi Bjartrar framtíðar í bæjarstjórn Akureyrar.
  270. Margrét Kristmannsdóttir – á lista Samfylkingarinnar
  271. Margrét Lind Ólafsdóttir – bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar á Seltjarnarnesi og formaður framkvæmdastjórnar Samfylkingarinnar
  272. Margrét M. Norðdahl, varaborgarfulltrúi í Reykjavík, Samfylkingin
  273. Margrét Pétursdóttir stjórnarkona í VG
  274. Margrét Tryggvadóttir varaþingmaður Samfylkingarinnar.
  275. María Grétarsdóttir, bæjarfulltrúi, FÓLKIÐ- í bænum, Garðabæ
  276. Maria Hjalmarsdottir varaþingmaður samfylkingarinnar í Norðaustur kjördæmi
  277. María Júlía Rúnarsdóttir, Framsókn
  278. María Pétursdóttir, Sósíalistaflokkur Íslands
  279. Marta Sigurðardóttir. Bæjarfulltrúi í Grindavík. Samfylkingin.
  280. Marzibil S. Sæmundardóttir fyrrverandi varaborgarfulltrúi S
  281. Nanna Hermannsdóttir, Röskvuliði og formaður sviðsráðs félagsvísindasviðs við HÍ.
  282. Nanna Kristín Tryggvadóttir, varamaður í miðstjórn, Sjálfstæðisflokki
  283. Nanný Arna Guðmundsdóttir forseti bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar
  284. Nichole Leigh Mosty Formaður hverfisráðs Breiðholts og fyrrum þingmaður Bjartar framtíðar
  285. Nikólína Hildur Sveinsdóttir – alþjóðaritari Ungra jafnaðarmanna, ungliðahreyfingar Samfylkingarinnar.
  286. Oddný G. Harðardóttir þingmaður Samfylkingarinnar.
  287. Oddný Sturludóttir, fyrrverandi borgarfulltrúi Samfylkingarinnar
  288. Oktavía Hrund Jónsdóttir, 1. varaþingkona Pírata suðvestur og stjórnarformaður Evrópskra Pírata
  289. Ólína Freysteinsdóttir, Fjölskyldufræðingur, Samfylkingin
  290. Ólöf Pálína Úlfarsdóttir fyrrum varaþingmaður Framsóknar
  291. Pálína Jóhannsdóttir Samfylking
  292. Pálína Margeirsdóttir bæjarfulltrúi Framsóknar, Fjarðabyggð.
  293. Pálmey Gísladóttir formaður Dögunnar
  294. Ragna Ívarsdóttir. Nefndir, stjórnir og skrifstofustörf, Framsóknarflokkurinn
  295. Ragna Sigurðardóttir, formaður Stúdentaráðs Háskóla Íslands.
  296. Ragnheiður Elín Árnadóttir, fv. þingmaður og ráðherra Sjálfstæðisflokksins
  297. Ragnheiður Hergeirsdóttir f.v. bæjarstjóri og bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Árborg.
  298. Ragnheiður Ríkharðsdóttir fv. þingmaður og þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins
  299. Ragnheiður S. Dagsdóttir. Formaður fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í Kópavogi.
  300. Ragnhildur Vigfúsdóttir Kvennalista og síðar Samfylkingin
  301. Rakel Dögg Óskarsdóttir Framsókn og flugvallarvinir.
  302. Rakel Óskarsdóttir, bæjarfulltrúi Akranesi, Sjálfstæðisflokki
  303. Rannveig Ernudóttir fyrrum ritari Pírata og núverandi vararitari Pírata, frambjóðandi með Pírötum 2017
  304. Rannveig Guðmundsdóttir fyrrverandi bæjarfulltrúi, alþingismaður og ráðherra
  305. Rósa Guðbjartsdóttir formaður bæjarráðs Hafnarfjarðar, Sjálfstæðisflokki.
  306. Rósanna Andrésdóttir, Samfylkingunni
  307. Sabine Leskopf, varaborgarfulltrúi Samfylkingarinnar
  308. Sæunn Stefánsdóttir, fyrrum ritari og þingmaður Framsóknarflokksins
  309. Sandra Dís Hafþórsdóttir Sjálfstæðisflokki, forseti bæjarstjórnar í Sveitarfélaginu Árborg
  310. Sandra Rán Ásgrímsdóttir, formaður Sambands ungra Framsóknarmanna
  311. Sanna Magdalena Mörtudóttir, varaformaður bráðabirgðarstjórnar Sósíalistaflokks Íslands
  312. Sanna Magdalena Mörtudóttir, varaformaður bráðabirgðarstjórnar Sósíalistaflokks Íslands
  313. Sara Dögg Svanhildardóttir formaður jafnréttisnefndar Viðreisnar
  314. Sara Oskarsson varaþingmaður Pírata.
  315. Sara Stef. Hilmarsdóttir, VG
  316. Sema Erla Serdar. Fyrrv. formaður framkvæmdastjórnar Samfylkingarinnar og fyrrv. formaður Samfylkingarinnar í Kópavogi.
  317. Sesselja Traustaóttir, VG – fv. Formaður VGR.
  318. Sif Huld Albertsdóttir, varabæjarfulltrúi fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Ísafjarðarbæ.
  319. Sif Jóhannesdóttir, sveitarstjórnarfulltrúi Norðurþingi, VG
  320. Sigríður Arndís Jóhannesdóttir, Stjórn Samfylkingarinnar í RVK og á lista 2017
  321. Sigríður Elva Konráðsdóttir, sveitarstjórnarfulltrúi
  322. Sigríður Erla Sturludóttir, 2. Varaformaður Sambands ungra sjálfstæðismanna
  323. Sigríður Gísladóttir, formaður VG á Vestfjörðum.
  324. Sigríður Huld Jónsdóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar á Akureyri.
  325. Sigríður Indriðadóttir, forseti bæjarstjórnar á Akranesi, Sjálfstæðisflokki
  326. Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, fyrrrv. þingkona Samfylkingarinnar
  327. Sigríður Lillý Baldursdóttir, Í grasrót Kvennalistans. Sat fyrir samtökin í ýmsum nefndum, ráðum, stjórnum og á þingi sem varaþingkona.
  328. Sigríður M Guðjónsdóttir Bæjarfullltrúi Fjarðslistans í Fjarðabyggð
  329. Sigríður María Egilsdóttir, varaþingmaður og stjórnarmeðlimur Viðreisnar.
  330. Sigríður Pétursdóttir VG, formaður hverfisráðs Kjalarness
  331. Sigríður Sigmarsdóttir Sjálfstæðisflokkur
  332. Sigríður Sólveig, grasrótin, Sjálfstæðisflokkurinn
  333. Sigríður Stefándóttir, fv, bæjarfulltrúi og forseti bæjarstjórnar á Akureyri og fyrrverandi stjórnarmaður í Sambandi ísl. sveitarfélaga
  334. Sigrún Björk Jakobsdóttir, Sjálfstæðisflokki. Fv. Bæjarfulltrúi og Bæjarstjóri á Akureyri.
  335. Sigrún Blöndal bæjarfulltrúi L-listans á Fljótsdalshéraði og formaður Sambands sveitarfélaga á Austurlandi
  336. Sigrun Edda Jónsdóttir, formaður bæjarráðs Seltjarnarnesi, Sjálfstæðisflokkur.
  337. Sigrún Gísladóttir Bates Miðflokkur. Fyrrum varaþingmaður Framsóknar á Suðurlandi.
  338. Sigrún H Pálsdóttir, bæjarfulltrúi Íbúahreyfingarinnar
  339. Sigrún Jonný Óskarsdóttir, útgáfustjóri Sambands ungra sjálfstæðismanna og fyrrverandi varaformaður Heimdallar.
  340. Sigrún Jónsdóttir fyrrverandi framkvæmdastýra Samfylkingarinnar og fyrrv. bæjarfulltrúi í Kópavogi
  341. Sigrún Ríkharðsdóttir, framkvæmdastjórn Samfylkingarinnar.
  342. Sigrún Skaftadóttir fyrrum Feminist Network Coordinator fyrir Young European Socialist, fyrrum alþjóðaritari Ungra Jafnaðarmanna og núverandi stjórnarmaður í kvennahreyfinu Samfylkingarinnar.
  343. Sigurbjörg Ásta Ólafsdóttir stjórnarmeðlimur Röskvu samtök félagshyggjufólks innan Háskóla Íslands
  344. Sigurborg Ósk Haraldsdóttir – ráðsfulltrúi Pírata hjá Reykjavíkurborg
  345. Sigurlaug Gissurardóttir, fyrrv. bæjarfulltrúi Framsóknar í Sv. Hornafirði.
  346. Sigurþóra Bergsdóttir, varabæjarfulltrúi Samfylkingarinnar á Seltjarnarnesi
  347. Silja Dōgg Baldursdóttir bæjarfulltrúi á Akureyri L- listinn
  348. Silja Dögg Gunnarsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins
  349. Silja Jóhannesdóttir – stjórnarmeðlimur í Kvennahreyfingu Samfylkingarinnar
  350. Silja Rán Arnarsdóttir, Sjálfstæðisflokkurinn
  351. Silja Snædal Drífudóttir, fyrrverandi alþjóðaritari UVG og varamaður í stjórn VG í Reykjavík
  352. Sirry Hallgrímasdóttir, varaformaður Landssambands Sjálfstæðiskvenna
  353. Sjöfn Kristjánsdóttir, Samfylling í ýmsum stjórnum og ráðum
  354. Sóley Björk Stefánsdóttir, bæjarfulltrúi á Akureyri, Vinstri græn
  355. Sóley Tómasdóttir, fyrrverandi borgarfulltrúi Vinstri grænna
  356. Sólveig Anna Jónsdóttir, Sósíalistaflokki Íslands
  357. Sólveig Guðjónsdóttir 3 sæti miðflokkur suðurkjör
  358. Sólveig Skaftadóttir -stjórnarmeðlimur í Kvennahreyfingu Samfylkingarinnar
  359. Stefanía Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri þingflokks Viðreisnar
  360. Steinunn Rögnvaldsdóttir, fyrrverandi formaður Ungra vinstri grænna.
  361. Steinunn Valdís Óskarsdóttir, fyrrverandi Borgarstjóri og þingkona Samfylkingar.
  362. Steinunn Ýr Einarsdóttir, formaður Kvennahreyfingar Samfylkingarinnar
  363. Steinunn Þóra Árnadóttir, þingkona VG
  364. Sunna Ella Isebarn Róbertsdóttir, Samfylkingin.
  365. Sunna Gunnars Marteinsdóttir, fv. framkvæmdastjóri þingflokks Framsóknar og aðstoðarmaður ráðherra
  366. Sunna Rós Víðisdóttir, fv. formaður framkvæmdaráðs Pírata- Píratar
  367. Sunna Snædal, varakona í Velferðarráði, VG
  368. Svala Jónsdóttir, Samfylkingu
  369. Svala Jónsdóttir, varamaður í nefnd fyrir VG
  370. Svandís Svavarsdóttir formaður þingflokks VG
  371. Svanfríður Jónasdóttir, fyrrv. þingmaður Samfylkingar og bæjarstjóri.
  372. Svanhildur Hólm Valsdóttir, aðstoðarmaður forsætisráðherra, Sjálfstæðisflokki
  373. Svava H Friðgeirsdóttir fyrrverandi formaður kjördæmisráða Framsóknarflokksins í Reykjavík og Norðvestur. Auk annarra trúnaðarstarfa fyrir Framsóknarflokkinn
  374. Svava Lárusdóttir bæjarfulltrúi fyrir Sjálfstæðisflokkinn á Seyðisfirði
  375. Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir, óháður borgarfulltrúi, fyrrv oddviti Framsóknar og flugvallarvina, varaþingmaður Framsóknar, Formaður Landssambands Framsóknarkvenna.
  376. Tanja Rún Kristmannsdóttir, varaformaður Sambands ungra framsóknarmanna
  377. Theodóra S. Þorsteinsdóttir – formaður bæjarráðs Kópavogsbæjar og fyrrum þingmaður Bjartrar framtíðar.
  378. Tinna Dögg Guðlaugsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisfélags Kópavogs og fv. Varaþingmaður
  379. Úlfhildur Rögnvaldsdóttir, Fyrrverandi bæjarfulltrúi á Akureyri til 12 ára, formaður Félags verslunar og skrifstofufólks Akureyri í 10 ár. Miðstjórn ASÍ og stjórn LÍV.Stofnfélagi í Miðflokknum, áður í Framsókn.
  380. Una Hildardóttir, gjaldkeri og 1 varaþingmaður VG í SV
  381. Una María Óskarsdóttir uppeldis-, menntunar- og lýðheilsufræðingur, 1. varaþingmaður Miðflokksins í Suðvesturkjördæmi.
  382. Unnur Brá Konráðsdóttir, fv. forseti Alþingis og varaþingmaður, Sjálfstæðisflokki
  383. Unnur Lára Brydde, Bæjarfulltrúi Hafnarfirði og formaður Hafnarstjórnar.
  384. Unnur Tryggvadóttir Flóvenz, fv. varabæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Kópavogi og fv. málefnastýra Ungra jafnaðarmanna.
  385. Unnur Þormóðsdóttir, Sjálfstæðisflokki, formaður bæjarráðs í Hveragerði.
  386. Vaka Lind Birkisdóttir varaformaður Röskvu samtök félagshyggjufólks innan Háskóla Íslands
  387. Vala Pálsdóttir, formaður Landssambands sjálfstæðiskvenna
  388. Valgerður Björk Pálsdóttir framkvæmdastjór
  389. Valgerður Bláklukka Fjölnisdóttir, varaformaður UVG
  390. Valgerður H. Bjarnadóttir, fyrrv. bæjarfulltrúi Kvennaframboðs og síðar Vinstri grænna
  391. Valgerður Halldórsdóttir fyrrverandi bæjarfulltrúi í Hafnarfirði – Samfylking
  392. Valgerður Sveinsdóttir, varaþingmaður Miðflokksins
  393. Vanda Sigurgeirsdóttir, fv. vara- sveitarstjórnarfulltrúi í Skagafirði og fv. Varaborgarfulltrúi í reykjavík, á lista 2017 fyrir Samfylking
  394. Viktoría Sif-bæjarfulltrúi í Hveragerði, Samfylking
  395. Vilborg Oddsdóttir Samfylking 5 sæti suður Reykjavík fyrir síðustu Alþingiskosningar
  396. Vilborg Þ. Guðbjartsdóttir bæjarfulltrúi á Akranesi, Björt framtíð.
  397. Þóra Elfa Björnsson í undirbúningsnefnd Eldri vinstri grænna
  398. Þóra Geirlaug Bjartmarsdóttir, Vinstri Græn, fyrrverandi formaður UVG
  399. Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, ritari stjórnar VG í Reykjavík.
  400. Þóra Magnea Magnúsdóttir stjórnarmaður í VG, Reykjavík.
  401. Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir fyrrverandi borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins
  402. Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir aðstoðarmaður félags-og jafnréttismálaráðherra og varaþingmaður Viðreisna
  403. Þorbjörg Þorvaldsdóttir, Samfylkingunni
  404. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, þingmaður og ráðherra Sjálfstæðisflokksins.
  405. Þórey Vilhjalmsdottir, fyrrverandi formaður Landssambands Sjálfstæðiskvenna
  406. Þorgerður Anna Arnardóttir Sjálfstæðisflokkurin
  407. Þorgerður Jóhannesdóttir, skrifstofustjóri Samfylkingarinnar og fyrrverandi bæjarfulltrúi
  408. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Viðreisn.
  409. Þorgerður María Halldórsdóttir fv Sjálfstæðisflokknum
  410. Þórhalla Rein Aðalgeirsdóttir, fyrrv. formaður UJ í Gbæ og Álftanesi, fyrrv. stjórn Röskvu.
  411. Þórhildur Hlín ungir jafnaðarmenn
  412. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir þingmaður Pírata
  413. Þórlaug Borg Ágústdóttir, ráðsfulltrúi og fyrrverandi formaður Pírata í  RVK
  414. Þórunn Egilsdóttir þingmaður Framsóknarflokksins
  415. Þórunn María Örnólfsdóttir sit í menningar- og safnanefnd á Akranesi f.h. Bjartrar framtíðar
  416. Þórunn Pétursdóttir, framkvæmdastjórn Bjartrar Framtíðar
  417. Þórunn Sif Harðardóttir, stjórn Sjálfstæðisfélags Akureyrar, vararbæjarfulltúi fyrir Sjálfstæðisflokkinn á Akureyri.
  418. Þórunn Sveinbjarnardóttir, fv. þingkona Samfylkingar
  419. Þuríður E. Pétursdóttir bæjarfulltrúi Alþýðubandalagsins á Ísafirði.

 

 

 

DEILA