Mikið grjóthrun varð á Ketildalavegi vestan Bíldudals á sunnudaginn. Í frétt á vef Vegagerðarinnar segir að „myndarlegir steinar“ hafi fallið á veginn og þá hafi þurft að fjarlægja með stórvirkum vinnuvélum. Sem betur fer var enginn á ferð þarna þegar grjóthrunið átti sér stað, segir í fréttinni.
Ketildalavegur liggur út í Selárdal og á leiðinni eru tveir bæir þar sem er búseta; Hvesta og Grænahlíð. Grjóthrunið varð við Svarthamra, ekki langt frá Bíldudal, áður en komið er í Hvestudal. Sjá á kortinu hér fyrir neðan. Grjóthrun er algengt á þessu svæði en sjaldgæft að svo stórir steinar hafni á veginum.
Búið er að hreinsa allt af veginum.