Baldur frá í að minnsta kosti fjórar vikur

Í bókun Bæjarráðs Vesturbyggðar frá í gær kemur fram að reiknað er með Breiðafjarðarferjan Baldur verði frá í að minnsta kosti fjórar vikur, bæjarráðið hefur áhyggjur af ástandi vega sem taka þurfa við þeirri umferð sem annars hefði farið með ferjunni. Ráðið krefst þess að snjómokstur og hálkuvörn á vegakerfi landshlutans verði aukið verulega og að vetrarþjónustan miðist við að vegir verði opnir til að minnsta kosti 24:00.

Ályktun bæjarráðs:

Samkvæmt upplýsingum frá Eimskip, rekstraraðila Breiðafjarðarferjunnar Baldurs, er ljóst að vegna alvarlegar bilunar í vélbúnaði skipsins má þess vænta að rekstrarstöðvun ferjunnar verði ekki undir fjórum vikum. Útlit er fyrir að ekki verði leigð önnur ferja til að leysa Baldur af á meðan skipið er úr þjónustu.

Bæjarráð bendir á að á vetrum er Breiðafjarðarferjan Baldur lífæð samgangna fyrir sunnanverða Vestfirði. Bent er einnig á að umferð flutningabifreiða inn og útaf svæðinu er vikulega rúmlega 100 bílar auk annarra umferðar. Ljóst er, svo að ekki verði alvarleg röskun á samgöngum í landshlutanum með tilheyrandi tjóni og óþægindum fyrir fyrirtæki og íbúa, að auka verður verulega vetrarþjónustu á vegakerfi landshlutans.

Bæjarráð krefst þess að nú þegar verði snjómokstur og hálkuvörn á vegakerfi landshlutans aukin verulega og að séð verður til þess að vetrarþjónustan miðist við að vegir verði opnir til a.m.k. 24:00 dag hvern á meðan að rekstrarstöðvun Breiðafjarðarferjunnar varir.

bryndis@bb.is

DEILA