Landssamband smábátaeigenda íhugar nú hvort að rétt sé að undirbúa fisksölu beint á erlenda markaði af bátum félagsmanna sambandsins. Þetta kom fram í ræðu Arnar Pálssonar, framkvæmdastjóra LS, á aðlafundi sambandsins fyrir helgi. Á fundinum kom fram að heildaraflaverðmæti smábáta fiskveiðiárið 2016/2017 varð 18 milljarðar og minnkaði um fimm milljarða á milli ára eða um rúman fimmtung.
Örn Pálsson gerði lágt fiskverð síðasta árs meðal annars að umræðuefni og sagði að ýmsar skýringar hefðu verið gefnar á því, t.d. að vinnslan hefði tekið meira til sín vegna launahækkana sem orðið hefðu hjá fiskvinnslufólki.
„Grundfirðingar brugðust við hinu lága verði og ákváðu að selja á fiskmarkaði í Bretlandi. Tilraunin gekk vel. LS íhugar nú hvort rétt sé að undirbúa sölu beint á erlenda markaði af bátum félagsmanna,“ sagði Örn.
smari@bb.is