Tjáning og tíðarhvörf í Edinborg

Eitt verkanna á sýningunni.

Tjáning og tíðarhvörf er yfirskrift sýningar Jonnu (Jónborgar Sigurðardóttur) og Brynhildar Kristinsdóttur sem verður opnuð í Edinborgarhúsinu á Ísafirði þann 14. júlí. Verk Jonnu á sýningunni eru unnin úr OB töppum og akrýlmálningu. Um síðustu aldamót hóf Jonna að nota OB tappa í myndsköpun. Eftir nokkurra ára hlé ákvað hún að taka þennan listmiðil upp aftur og úr varð sýningin Tíðarhvörf og hefur Jonna einfaldlega þetta að segja um sýninguna: ,,Hormónarnir taka völdin, bless blóð, halló þroski og gleði“!

Jonna útskrifaðist úr fagurlistadeild Myndlistaskólans á Akureyri vorið 1995 og sem fatahönnuður frá Københavns Mode- og Designskole 2011. Myndlist hennar spannar vítt svið, allt frá málverki til innsetninga. Hún hefur verið mjög virk í listalífinu á Akureyri síðustu árin; haldið einkasýningar, tekið þátt í samsýningum og staðið fyrir uppákomum.

Verk Brynhildar fjalla um tjáningu mannsins, hvernig hugmyndir hlutgerast. Verkin eru olíumálverk og skúlptúrar sem eru mótaðir í pappamassa og álpappír.

Brynhildur Kristinsdóttir (f.1965) nam myndlist í Myndlistaskólanum á Akureyri og í Myndlista- og handíðaskóla Íslands. Eftir útskrift úr myndmótunardeild 1989 fór Brynhildur til Ítalíu þar sem hún vann með myndhöggvurum en síðan lá leið hennar í Iðnskólann í Reykjavik þar sem hún lærði húsgagnasmíði en árið 2011 lauk hún kennaranámi frá Háskólanum á Akureyri. Auk þess að starfa við eigin myndsköpun hefur hún kennt myndlist og átt í samstarfi við ýmsa listamenn, gert leikmynd og búninga fyrir gjörninga og dans. Brynhildur hefur haldið nokkrar einkasýningar og tekið þátt í fjölmörgum samsýningum. Hún starfar nú á Akureyri sem athafnasamur kennari og myndlistarmaður.

DEILA