Þröng á þingi á Ísafirði

Azura á legunni í morgun og Ocean Diamond siglir inn fjörðinn.

Þrjú skemmtiferðaskip eru á Ísafirði í dag. Ocean Diamond og AIDA Vita liggja eru í Sundahöfn og stærsta skipið, Azura, liggur við akkeri á Skutulsfirði. Fjöldi farþegar í skipunum er eitthvað á fimmta þúsund og setja farþegarnir því sterkan svip á bæinn í dag. Dagurinn í dag er einn af níu dögum í sumar þar sem gestafjöldi fer yfir 3.000 og liggur í augum uppi að eitthvað á eftir að fara fyrir fólkinu.

Í kjölfar vinnu starfshóps um framtíðarskipan þessara mála mun Ísafjarðarbær á næstu dögum gefa út bækling fyrir farþega skipanna þar sem þeir eru boðnir velkomnir og farið er yfir það á skemmtilega kómískan hátt hvað ber að forðast.

Við gerð bæklingsins var litið til þeirra viðmiða sem AECO, samtök skipafélaga sem sigla á norðurslóðum, hafa gefið út.

Farþegum skemmtiferðaskipa bent góðfúslega á að gægjast ekki á glugga íbúa á eyrinni.

Listmálarinn og skopmyndateiknarinn Pétur Guðmundsson var fenginn til að túlka það sem mest hefur reynt á þolrif heimamanna og það er von hafnaryfirvalda bæklingurinn koma í veg fyrir mögulega árekstra.

DEILA