Strandblakið á sínum stað

Það er áralöng hefð fyrir stigamóti í strandblaki á Þingeyri í tilefni Dýrafjarðardaga og í ár er engin undantekning. Þetta mun vera í 12. skipti sem mótið er haldið á Þingeyri, en það er Íþróttafélagið Höfrungur sem stendur fyrir mótinu. Þetta er þriðja stigamótið á árinu og munu  stigahæstu liðin keppa á Íslandsmótinu síðar í sumar. Keppt er í fullorðinsflokki, bæði kvenna og karla og að sögn Dýrleifar Hönnu Sigmundsdóttur mótsstjóra rennur skráningarfrestur út mánudaginn 26. júní. Nánari upplýsingar má nálgast á Facebooksíðu mótsins.

 

DEILA