Á þriðjudaginn næsta fagnar Reykhólahreppur 30 ára afmæli sveitarfélagsins og þessum merku tímamótum verður fagnað í Hvanngarðsbrekku á Reykhólum. Hinn upphaflegi Reykhólahreppur rekur sögu sína miklu lengra aftur en hreppurinn náði frá Kambsfjalli vestur að Múlaá í Þorskafirði. Þann 4. júlí 1987 sameinuðust allir hreppar í Austur-Barðastrandarsýslu undir nafni Reykhólahrepps. Hinir fjórir voru Geiradalshreppur, Gufudalshreppur, Múlahreppur og Flateyjarhreppur.
Hátíðarhöldin á þriðjudaginn hefjast kl. 17 og standa fram eftir kvöldi en dagskráin er svohljóðandi:
- Ingibjörg Birna Erlingsdóttir sveitarstjóri setur samkomuna
- Grill að hætti hreppsnefndar; grillkjöt, kartöflusalat, hrásalat, sósa og meðlæti. Drykkir á staðnum
- Brekkusöngur
- Karl Kristjánsson varaoddviti les upp ágrip af sögu sveitarfélagsins
- Tónlistaratriði
- Leikskólalögin
- Gamanmál og grín – 3 aðfluttir sveitungar segja frá fyrstu kynnum sínum af sveitinni, fólkinu og samfélaginu
- Nammitrúðarnir færa börnunum sápukúlur og sleikjó
- Vilberg Þráinsson oddviti slítur samkomunni en afmælisgestum er frjálst að sitja í brekkunni áfram