Niðurstaðan vonbrigði

Kristján G. Jóakimsson

Ógilding úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála á starfsleyfi Háafells hf. fyrir 6.800 tonna eldi á regnbogasilungi í Ísafjarðardjúpi er vonbrigði að sögn Kristjáns G. Jóakimssonar, verkefnastjóra Háafells. „Fyrirtækið hóf umsóknarferli vegna eldis fyrir sex árum og mikil áhersla hefur verið lögð á að vanda vel til verka og uppfylla ítrustu kröfur sem gerðar eru lögum samkvæmt og koma til móts við ólík sjónarmið. Það eru því vonbrigði að niðurstaðan skuli vera þessi en rétt að hafa í huga að athugasemdir úrskurðarnefndarinnar snúa að tæknilegum atriðum innan stjórnsýslunnar, en ekki Háafelli,“ segir Kristján í tilkynningu á vef Hraðfrystihússins – Gunnvarar, en Háafell er dótturfyrirtæki HG.

Kristján segir að úrskurðurinn ætti ekki að setj fyrirætlanir Háafells í uppnám, tiltölulega auðvelt ætti að vera fyrir stjórnsýsluna að laga þá annmarka sem úrskurðarnefndin bendir.  „Úrskurðurinn veitir væntanlega færi á því að Umhverfisstofnun fari vel yfir sína ferla og bæti úr þeim annmörkum sem úrskurðarnefndin bendir á. Ég sé ekki hvernig Háafell hefði átt að standa öðruvísi að sínum hlut. Við höfum fylgt eftir bókstaf laganna í einu og öllu. Við erum nú á lokametrunum með umhverfismat vegna laxeldis í Ísafjarðardjúpi, við höfum lagt mikla vinnu í allt ferlið og því ættum við, gangi allt eftir, að geta haldið áfram markvissri uppbyggingu á eldi í Ísafjarðardjúpi í haust eða strax á nýju ári,“ segir Kristján.

DEILA