Fellir niður gatngagerðargjöld á 22 lóðum

Tunguhverfi.

Bæjarráð Ísafjarðarbæjar hefur samþykkt að bærinn felli niður gatnagerðargjöld á 22 lóðum á Ísafirði. Bæjarstjórn samþykkti í vor að fella niður niður gatnagerðargjöld af byggingu íbúðarhúsnæðis í sveitarfélaginu á lóðum sem sérstaklega verða auglýstar í þessu skyni af Ísafjarðarbæ. Ákvæðið varir til 1. maí 2018 og er ekki afturvirkt og er miðað er við að framkvæmdir hefjist innan þessara tímamarka og ljúki fyrir 1. maí 2020. Sækja þarf sérstaklega um þessa niðurfellingu til Ísafjarðarbæjar. Niðurfellingin tekur gildi við lokaúttekt og er gjaldfrestur veittur fram að henni. Ljúki framkvæmdum ekki fyrir 1. maí 2020 fellur lækkunin niður.

Þær lóðir sem bærinn ætlar að fella niður gatnagerðargjöld er: Ártunga nr. 1,2,3,4,6. Daltunga 2,3,4,6,8, Fífutunga 4,6. Einnig eftirfarandi einbýlishúsalóðir við Seljaland, lóðir nr. 17,18,23 og  raðhúsalóðir við Skógarbraut, lóðir merktar k-j-i-h-g og parhúsalóðir merktar f-e.

DEILA