Fagnar áformum samgönguráðherra

Bæjarráð Ísafjarðarbæjar fagnar áformum samgönguráðherra um byggingu flugstöðvar í Vatnsmýri. Í ályktun bæjarráðs segir að ljóst sé að núverandi flugvöllur mun standa þarna næstu árin. „Óbreytt ástand í flugstöðvarmálum er óviðunandi og því þarf að bregðast við með bættri aðstöðu svo að innanlandsflug geti dafnað.“

Jón Gunnarsson samgönguráðherra greindi frá því í síðustu viku að hann vonist til að framkvæmdi við nýja flugstöð geti hafist á næsta ári. „Það er í mín­um huga mik­il­vægt að hefja sóma­sam­lega upp­bygg­ingu á aðstöðu fyr­ir farþega og starfs­menn í Vatns­mýri,“ sagði Jón í viðtali í Morgunblaðinu.

DEILA