Gistinóttum heldur áfram að fjölga

Ferðaþjónustan hefur verið drifkraftur í hagkerfinu síðustu ár.

Gistinætur á hótelum í mars voru 352.752 sem er 17% aukning frá því í mars 2016. Gistinætur erlendra gesta voru 88% af heildarfjölda gistinátta í mánuðinum en þeim fjölgaði um 17% frá sama tíma í fyrra á meðan gistinóttum Íslendinga fjölgaði um 15%. Þetta kemur fram í tölum frá Hagstofu Íslands.

Flestar gistinætur á hótelum í mars voru á höfuðborgarsvæðinu eða 232.987 sem er 12% aukning milli ára. Um 66% allra gistinátta voru á höfuðborgarsvæðinu. Næstflestar voru gistinætur á Suðurlandi eða um 66.300. Erlendir gestir með flestar gistinætur í mars voru Bandaríkjamenn með 93.700, Bretar með 90.600 gistinætur og Þjóðverjar með 24.300, en íslenskar gistinætur í mars voru 42.000.

Í talnaefni Hagstofunnar eru gistinætur á Vesturlandi og Vestfjörðum taldar saman. Þeim fjölgaði um 19% milli ára, þ.e. þegar mars 2016 er borin saman við mars 2017. Á tólf mánaða tímabili frá apríl 2016 til mars 2017 fjölgaði gistinóttum á svæðinu um 40% samanborið við sama tímabil árin áður.

Á tólf mánaða tímabili frá apríl 2016 til mars 2017 voru gistinætur á hótelum 3.642.919 sem er 33% aukning miðað við sama tímabil árin áður.

DEILA