Íbúar Vestfjarða voru 6.870 þann 1. janúar 2017 og hafði fækkað um 13 manns frá 1. janúar 2016. Þetta kemur fram í nýjum tölum Hagstofu Íslands um fólksfjölda.
Fólkfjölgun var í öllum sveitarfélögum á Vestfjörðum nema í Ísafjarðarbæ, Tálknafjarðarhreppi og Árneshreppi. Mesta fólksfækkunin var á Tálknafirði, en á tímabilinu fór íbúatalan úr 267 í 236, eða um 11 prósent. Hlufallslega var meiri fólksfækkun í Árneshreppi, en þar fækkaði fólki um 16 prósent, fór úr 55 íbúum í 46. Um áramótin bjuggu 3.608 í Ísafjarðarbæ og hafði fækkað um 15 manns á einu ári.
Mesta fólksfjölgunin varð í Vesturbyggð, um 17 manns, og í Reykhólahreppi, um 15 manns.
Íbúafjöldi á Vestfjörðum eftir sveitarfélögum.
Ár 2016 2017
Bolungarvík 904 908
Ísafjarðarbær 3623 3608
Reykhólahreppur 267 282
Tálknafjarðarhreppur 267 236
Súðavíkurhreppur 184 186
Kaldrananeshreppur 103 106
Árneshreppur 55 46
Strandabyggð 467 468
Vesturbyggð 1013 1030
smari@bb.is