Flestir brunar á heimilum í desember og janúar

Fara þarf varlega með eld yfir hátíðarnar

Samkvæmt tölfræði VÍS verða flestir brunar á heimilum í desember og fast á eftir fylgir svo janúar. Rúmlega fjórðungur allra bruna á heimilum verða í þessum tveimur mánuðum. Algengast er að kvikni í út frá eldamennsku en opinn eldur er einnig tíður brunavaldur, sér í lagi yfir jólahátíðina þegar kertanotkun er hvað mest.

Í tilkynningu frá VÍS segir þó að brunum á heimilum hafi fækkað undanfarin ár, um ríflega helming undanfarin 5 ár. Því miður hefur þeim þó fjölgað um 90% á þessu ári, miðað við sama tíma í fyrra. VÍS sér því ástæðu til að minna fólk á hvernig fyrirbyggja megi bruna og eldsvoða.

Eldavél
Ekki fara frá eldavél við eldamennsku.
Gæta þess að olía ofhitni ekki.
Geyma ekkert ofan á eldavél.

Kerti
Hafa traustar undirstöður.
Láta ekkert skraut liggja að kerti.
Hafa a.m.k. 10 sm á milli kerta.
Hafa kerti ekki nærri gardínum eða í gegnumtrekki.
Fylgjast vel með húðuðum kertum því það getur kviknað í skrauthúðinni.
Staðsetja kerti þannig að ungum börnum og dýrum stafi ekki hætta af.
Nota kerti með kveik sem nær ekki alla leið niður.
Ekki setja útikerti beint á timburpall eða í gangveg.

Seríur
Nota ledseríur frekar en seríur með skiptanlegum perum þar sem þær fyrrnefndu eru öruggari með tilliti til brunahættu.
Ekki má raðtengja fjöltengi né setja of rafmagnsfrek tæki í samband við sama fjöltengið.
Skipta út lélegum fjöltengjum og seríum.
Skipta um perur sem springa.
Láta lofta vel um hleðslutæki sem hitna.

Jafnframt segir í tilkynningunni að mikilvægt sé að hin heilaga eldvarnaþrenning sé í hávegum höfð á heimilinu. Hún samanstendur af virkum reykskynjurum, eldvarnarteppi og slökkvitæki sem er í lagi.

brynja@bb.is

DEILA