Endurbæta á snjóflóðavarnir á Flateyri í sumar

Frá Flateyri.

Stefnt er að því að hefja framkvæmdir við endurbættar snjóflóðavarnir á Flateyri í sumar.

Kristín Martha Hákonardóttir, snjóflóðaverkfræðingur hjá Verkís, hefur leitt hönnun endurbættra snjóflóðavarna á Flateyri, í samstarfi við fjölda innlendra og erlendra sérfræðinga. 

Staða verksins þegar þetta er ritað er sú að verið er að ljúka við ritun frumathugunarskýrslu en teikningasett og líkön af vörnum liggja fyrir. Verk- og landslagshönnun er hafin. Þá er verið að ljúka gerð útboðsgagna vegna netgrinda. 

Tillögur Verkís um endurbætur á snjóflóðavörnum eru eftirfarandi:

  • Reistar verði þrjár keiluraðir ofan núverandi leiðigarða til þess að draga úr flóðhraða í bæði iðufaldi og þéttum kjarna áður en flóð lendir á leiðigarði og aðskilja iðufald og þéttan kjarna í flóði.
  • Þvergarður milli leiðigarða verði hækkaður og endurbyggður brattur með lítillega breyttri legu, til þess að draga úr hættu á yfirflæði.
  • Móta flóðrásir við báða leiðigarða, til þess að auka virka hæð leiðigarða og tryggja óhindrað rennsli snjóflóða meðfram görðunum og út í sjó.
  • Byggja lágan en brattan leiðigarð ofan hafnar til þess að beina flóðum frá höfn.
  • Setja upp um 2 km af snjósöfnunargrindum á Eyrarfjalli, til þess að draga úr tíðni flóða í byrjun vetrar úr upptakasvæðunum og þannig draga enn frekar úr hættu í byggð vegna iðufalds. Snjósöfnunargrindur munu einnig draga úr tíðni flóða úr upptakasvæði, svæði stórra og lítilla.
  • Styrkja glugga- og dyraop sem snúa upp í hlíð, í öllum húsum á áhættusvæði B, með áherslu á hús efst á hættusvæðinu.

Þegar hefur verið ráðist í nokkur verk tengd framkvæmdinni:

  • Haustið 2021 var flóðrás meðfram leiðigarði undan Innra-Bæjargili dýpkuð.
  • Sumarið 2021 voru styrkingar fyrir glugga- og dyraop í tveimur húsum við Ólafstún hannaðar og samtal átt við íbúa um útfærslur.
  • Sumarið 2022 voru settar upp snjósöfnunargrindur og veðurstöð á Eyrarfjalli, ofan Flateyrar í tilraunaskyni. Veðurstofan mun mæla skaflana en grindurnar virðast safna verulegu snjómagni. Fylgst verður með virkni þeirra í þrjá vetur. 
  • Veðurstofa Íslands hefur sett upp Veðurstöð á Eyrarfjalli, nýjan radar á leiðigarðinn undan Skollahvilft sem mælir hraða flóða sem falla úr gilinu, annan radar við höfn sem nemur flóð sem falla úr nokkrum giljum við Flateyri og snjódýptarmæla í Innra-Bæjargil og Miðhryggsgil.
DEILA