Rekstrarleyfi ÍS 47 ehf. til fiskeldis í Önundarfirði tekur breytingum

Matvælastofnun hefur unnið tillögu að breyttu rekstrarleyfi fyrir ÍS 47 ehf. vegna sjókvíaeldis í Önundarfirði en fyrirtækið er með rekstrarleyfi (FE-1109) fyrir 1.000 tonna hámarkslífmassa á eldi á regnbogasilungi og þorski í Önundarfirði sem gefið var út 8. janúar 2021.

Tillaga að breytingu á rekstrarleyfi byggir á tilkynningu ÍS 47 ehf. frá 21. október 2022 um tegundabreytingu og færslu svæðis ásamt ákvörðun Skipulagsstofnunar frá 7. febrúar 2023 um matsskyldu.

Breyting á rekstrarleyfinu heimilar eldi á frjóum laxi í Önundarfirði en heimild til eldis á þorski verður felld úr leyfinu samhliða breytingunni.

Hámarkslífmassi verður óbreyttur, en eldisskilyrði breytast í samræmi við tilkomu frjós lax í rekstrarleyfið. Breytingin felur einnig í sér færslu svæðis frá Ingjandssandi yfir á Hundsá, þannig að áfram eru einungis tvö svæði í leyfinu.

DEILA