Ekki verður annað sagt en að góðar áætlunarsamgöngur séur milli Ísafjarðar og Bolungavíkur. Alla virka daga eru níu ferðir milli staðanna og eru um að ræða gjaldfrjásar almenningssamgöngur sem eru í boði fyrir alla íbúa. Hefur svo verið frá janúar 2023.
Á Ísafirði er stoppistöð á Torfnesi og Króknum en í Bolungarvík er það við Íþróttamiðstöðina og Hvíta húsið.
Auk þessar ferða er flugrúta sem fer í öll flug á Ísafjarðarfugvöll með farþega til og frá Bolungarvík, Hnífsdal og Ísafirði, en nauðsynlegt er að panta far með rútunni í síma 893 8355 og borga fargjald.
Tímataflan fyrir rútuferðirnar.