Í tilkynningu á vef Fiskistofu kemur fram fjölda fisktegunda má sleppa sem berast sem meðafli annarra veiða og í sumum tilvikum er skylda að sleppa fiskum við veiðar.
„Eftirlitsmenn Fiskistofu munu fljúga drónum til eftirlits í ágúst og viljum við minna á að allar upptökur eru skoðaðar vel og fiskur sem fer fyrir borð er tegundargreindur,“ segir í tilkynningunni.
Fiskistofa vil því biðja sjómenn og útgerðaraðila að kynna sér vel reglur og lög um stjórn fiskveiða.
Fram kemur í tilkynningunni að:
- Óhætt er að sleppa hlýra og ef hann er lífvænlegur.
- Skylt er sleppa beinhákarli, háfi og hámeri, ef lífvænleg.
- Heimilt er að sleppa lífvænlegri tindaskötu.
- Sleppa á grásleppu sem fæst í þorskfiskanet.
- Heimilt er að sleppa lífvænlegum rauðmaga við hrognkelsaveiðar.
- Komi lúða um borð í veiðiskip sem meðafli á umsvifalaust að sleppa lífvænlegri lúðu.
- Við línuveiðar skal sleppa allri lúðu með því að skera á taum línunnar.
- Við handfæra- og sjóstangaveiðar á að losa lúðu varfærnislega af krókum eða skera á lykkju slóðans áður en lúða kemur um borð.