Verkefnið „Komdu í fótbolta“, samstarfsverkefni KSÍ og Landsbankans, heldur áfram sumarið 2023 og felur í sér heimsóknir til minni sveitarfélaga um land allt.
Siguróli Kristjánsson, oftast kallaður Moli, hefur umsjón með verkefninu og mun hann setja upp skemmtilegar og fjölbreyttar fótboltabúðir á hverjum stað til að efla áhuga iðkenda og styðja við bakið á knattspyrnustarfinu á staðnum.
Moli er Akureyringur í húð og hár og lék um árabil með Þór, auk þess sem hann hefur þjálfað hjá félaginu í mörg ár. Þess má einnig geta að hann á tvo A landsleiki að baki.
Moli verður á þessum stöðum á Vestfjörðum á næstunni.
Ísafjörður | Þriðjudagur 8. ágúst | 12:00 |
Suðureyri | Þriðjudagur 8. ágúst | 15:00 |
Flateyri | Miðvikudagur 9. ágúst | 12:00 |
Tálknafjörður | Fimmtudagur 10. ágúst | 11:00 |
Patreksfjörður | Fimmtudagur 10. ágúst | 13:00 |