Hreyfihópur Sigurvonar farinn af stað

Hreyfihópur krabbameinsfélagsins Sigurvonar hefur hafið göngu sína á ný. Þetta er í fjórða sinn sem félagið býður upp á fríar æfingar yfir sumartímann en þær fara fram á mánudag og miðvikudaga frá Torfnesi. Æfingarnar eru undir tilsögn Árna Heiðars Ívarsson, einkaþjálfa og hlaupara með meiru en hann hefur stýrt hópnum frá upphafi. Nú er sú breyting á að hlaupaplanið er gert opinbert í sameiginlegri Facebook-grúppu þannig að allir sem vilja geta tekið þátt sama hvar þeir eru staddir á Vestfjörðum.

Hlaupafélagarnir hafa það að leiðarljósi að hafa gaman af þessari hollu hreyfingu ásamt því að auka andlega og líkamlega vellíðan sína. Hver þátttakandi getur stýrt sínu æfingunum eftir eigin getu. Á æfingunum er hlaupið, skokkað, gengið og unnið með eigin líkamsþyngd. „Þetta er góður og skemmtilegur hópur þar sem allir er á sínum forsendum og ekki að keppa við neinn nema sjálfan sig,“ segir Thelma Hjaltadóttir sem hefur verið í hópnum frá upphafi.

Hreyfihópurinn er starfræktur fram að Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka í ágúst. Upphaflega var hópurinn hugsaður til að styðja við bakið á þeim hlaupurum sem hlaupa til styrktar Sigurvon í maraþoninu en það ekki skilyrði fyrir þátttöku. Allir eru velkomnir og aðalmarkmiðið að hafa gaman í góðum félagsskapi og auka hreysti.

DEILA