Gallerí úthverfa: Agnes Freyja Björnsdóttir sýning

Laugardaginn 3. júní kl. 16 verður opnuð sýning á verkum Agnesar Freyju Björnsdóttur í Úthverfu á Ísafirði. Sýningin ber heitið Glufa og stendur til sunnudagsins 18. júní.  Listakonan verður viðstödd opnun sýningarinnar og boðið verður uppá léttar veitingar.

Á sýningunni Glufu gefst færi til að skyggnast inn í einhvers konar sviðsetningu af óræðum stað. Í rýminu eru vísbendingar um staðinn og hlutirnir þar minna á hversdagslega hluti sem við sjáum í okkar daglega umhverfi; glufa inn í annan heim sem er kunnuglegur en nýr á sama tíma.

Agnes Freyja Björnsdóttir er með BA-gráðu í vöruhönnun frá Listaháskóla Íslands þaðan sem hún útskrifaðist vorið 2020. Eftir útskrift hefur hún unnið sjálfstætt sem meðlimur í tríóinu studio allsber ásamt Silvíu Sif Ólafsdóttur og Sylvíu Dröfn Jónsdóttur.

Helstu miðlar sem Agnes notar í verk sín eru keramík, vídeó og hljóð og einkennandi fyrir verk hennar eru húmor, leikur og tilraunagleði. Viðfangsefnin í verkum Agnesar vísa oft í hversdaginn og hvernig hann birtist okkur í ólíkum myndum.

DEILA