Landhelgisgæslan aðstoðaði 20 manna hóp sjálfboðaliða sem safnaði rusli í 24 ,,saltpoka“ í Bolungarvík á Ströndum um helgina.
Ruslið var flutt frá Bolungarvík til Ísafjarðar með varðskipinu Freyju.
Þetta var tíunda hreinsunarferð hópsins sem kallar sig Hreinni Hornstrandir.
Ferðinni lauk þegar varðskipið lagðist að bryggju á Ísafirði með ,,afla“ helgarinnar eins og segir í frétt Landhelgisgæslunnar.

Hópurinn um borð í varðskipinu Freyju.

