Með bréfi Neytendastofu til Olís ehf., eiganda vörumerkis ÓB og rekstraraðila eldsneytissjálfsafgreiðslustöðva ÓB, dags. 24. janúar 2023, greindi stofnunin frá ábendingum sem borist höfðu vegna auglýsinga félagsins um tiltekinn afslátt af eldsneyti.
Ábendingarnar lutu að því að auglýstur hafi verið afsláttur af eldsneyti, sem tengdist úrslitum íslenska landliðsins í handbolta á heimsmeistaramótinu sem fram fór í Svíþjóð, án þess að tekið hafi verið fram að afslátturinn gilti ekki á ákveðnum sjálfsafgreiðslustöðvum ÓB.
Umræddar auglýsingar birtust a.m.k. á vefsíðunum visir.is og dv.is og þá sem rúllandi vefborðar þar sem einvörðungu kom fram tiltekin krónutölulækkun á eldsneyti en ekki að afsláttarkjörin giltu ekki á ákveðnum sjálfsafgreiðslustöðvum ÓB.
Í svörum félagsins kom fram að ef smellt hafi verið á auglýsingarnar hafi birst borði þar sem kom fram að viðkomandi afsláttur gilti ekki á tilteknum stöðvum ÓB. Þá hafi skilaboð verið send á viðskiptamenn félagsins þar sem þetta kom fram. Því telji félagið að auglýsingarnar hafi ekki verið til þess fallnar að blekkja neytendur.
Neytendastofa komst að þeirri niðurstöðu að með því að taka ekki fram í öllum auglýsingum að afslátturinn væri ekki í boði á ákveðnum sölustöðum hafi Olís viðhaft villandi viðskiptahætti. Þá komst stofnunin að þeirri niðurstöðu að upplýsingar um takmarkanir á afsláttum hafi ekki verið komið á framfæri með nægjanlega skýrum og greinargóðum hætti.
Bannaði stofnunin Olís að viðhafa umrædda viðskiptahætti.