Skýr krafa um jarðgöng ef sameina á Tálknafjarðarhrepp og Vesturbyggð

Fulltrúar samstarfsnefndar um sameiningu Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar heimsóttu þingflokka á Alþingi síðasta miðvikudag.

Efni fundanna var að fara yfir mikilvægi jarðganga um Mikladal og Hálfdán. Áttu fulltrúarnir gott samtal við þingmenn sem skilja vel kröfur íbúa um jarðgöng og vonandi munu þingmenn hafa það í huga þegar samgönguáætlun kemur til vinnslu og afgreiðslu á næstu mánuðum.


Kjörnir fulltrúar og íbúar Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar hafa unnið mikla vinnu við undirbúning íbúakosningar um sameiningu sveitarfélaganna en áætlað er að kosningar fari fram í haust. Starfshópar hafa rýnt öll málefni sveitarfélaganna og er það skýr niðurstaða allra framangreindra aðila að forsenda fyrir farsælli sameiningu sveitarfélaganna er jarðgöng um Mikladal og Hálfdán.

Góð tenging á milli byggðakjarna innan væntanlegs sameinaðs sveitarfélags er lykillinn að því að svæðið geti uppfyllt skilyrði þess að vera eitt búsetu-, þjónustu- og atvinnusvæði. Samstarfsnefndin hefur sammælst um staðsetningu jarðganga í samræmi við innviðagreiningu er unnin var fyrir Vesturbyggð 2019 og er því full samstaða um staðsetningu jarðganga á svæðinu. Allir þingmenn fengu einnig afhent minnisblað um mikilvægi jarðgangna um Mikladal og Hálfdán.

Samstarfsnefnd um sameiningu Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar leggur því til við Alþingi að í þingsályktun um fimm ára samgönguáætlun fyrir árin 2024-2028 verði gert ráð fyrir að hafin verði vinna við hönnun jarðganga um Mikladal og Hálfdán.



Fulltrúar samstarfsnefndar er mættu á fundina voru Lilja Magnúsdóttir oddviti Tálknafjarðarhrepps, Þórkatla Soffía Ólafsdóttir bæjarfulltrúi Vesturbyggðar, Ólafur Þór Ólafsson sveitarstjóri Tálknafjarðarhrepps og Þórdís Sif Sigurðardóttir, bæjarstjóri Vesturbyggðar.

Fulltrúar samstarfsnefndar í Alþingishúsinu

Fulltrúar samstarfsnefndar í Alþingishúsinu

DEILA