Í gær, miðvikudaginn 10. maí var opnuð sýning á lokaverkefnum nemenda í áfanganum MYNL2FF05 í Menntaskólanum á Ísafirði. Sýningin er í Edinborgarhúsinu.
Nemendur í áfanganum hafa unnið að lokaverkefnum sínum síðustu vikur. Megin útgangspunkturinn er formfræði og fjarvídd sem fól m.a. í sér hlutateikningu, klippimyndir, fjarvídd, formfræði og skapandi vinnu.
Fjölbreytt verk verða á sýningunni þar sem hver og einn vinnur út frá sinni persónulegu nálgun á náminu.
Yfirskrift sýningarinnar er Sjö punktar og verður hún opin á opnunartíma Edinborgarhússins til 24. maí.