Háskólalestin á Ísafirði 19. og 20. maí – fjör og fræði fyrir alla fjölskylduna

Vorið er komið og það þýðir Háskólest Háskóla Íslands ferðast víða um land með fræðslu í frábærum félagsskap ungu kynslóðarinnar. Háskólalestin verður á Ísafirði 19. og 20. maí næstkomandi.

Að vanda verða haldin námskeið fyrir grunnskólanemendur. Föstudaginn 19. maí standa nemendum í 8.-10. bekk Grunnskólans á Ísafirði til boða námskeið um allt milli himins og jarðar, m.a. um blaða- og fréttamennsku, efnafræði, töfra ljóss og lita, forritun með skynjurum og föndri, orð og ljóð, kortagerð á hafi og landi, stjörnufræði, sjúkraþjálfun og dulkóðun.

Laugardaginn 20. maí verður svo slegið upp sannkallaðri vísindaveislu fyrir alla bæjarbúa í salnum í Grunnskólanum á Ísafirði laugardaginn 20. maí kl. 10-13:30. Þar býðst fjölskyldumeðlimum á öllum aldri að kynnast undrum vísindanna með gangvirkum og lifandi hætti í gegnum fjölbreytt tæki, tól og smiðjur. Það er enginn aðgangseyrir og öll eru hjartanlega velkomin! 

Megináherslan Háskólalestarinnar er að kynna vísindi á lifandi og fjölbreyttan hátt fyrir ungu fólki, styðja við starf grunnskólanna og efla tengsl við landsbyggðina. Í áhöfn lestarinnar eru kennarar og nemendur við Háskóla Íslands, sem flestir hverjir starfa einnig sem leiðbeinendur í Vísindasmiðju HÍ og Háskóla unga fólksins. 

Áhöfnin hlakkar mikið til þess að hitta samfélagið á Ísafirði!

Nánar um Háskólalestina

Háskólestin hefur heimsótt hátt á fjórða tug áfangastaða um allt land og ávallt fengið einstaklega hlýjar móttökur. Það er því mikið tilhlökkunarefni að hefja ferðina ár hvert en allt starf lestarinnar er skipulagt í nánu samstarfi við sveitarfélög og skóla hvers áfangastaðar.

Þess má til gamans geta að Háskólalestin hefur hlotið Vísindamiðlunarverðlaun Rannís fyrir störf sín. Þá hafa Vísindasmiðjan og Háskóli unga fólksins einnig fengið viðurkenningar fyrir vísindamiðlun.

DEILA