Byggðarþróunarverkefninu Öll vötn til Dýrafjarðar lokið

Byggðarþróunarverkefninu Öll vötn til Dýrafjarðar er nú lokið. Verkefnið var rekið undir merkjum Brothættra byggða og var meginmarkmið þess að stöðva viðvarandi fólksfækkun á Þingeyri. Verkefnið hófst árið 2018 og var upphaflega hugsað til þriggja ára en var síðar framlengt til loka árs 2022. Því fylgdi fjármagn sem nýtt hefur verið til úthlutunar styrkja til ýmissa samfélagsverkefna ásamt verkefna sem stuðla að atvinnuuppbyggingu.

Boðað var til íbúafundar á Þingeyri þriðjudaginn 16. maí til að ljúka verkefninu formlega, þar sem kynnt var samantekt og niðurstaða verkefnisins.

Í skýrslu fyrir lokaár Öll vötn til Dýrafjarðar kemur fram að kynntar hafa verið ýmsar leiðir sem miða að atvinnuuppbyggingu og eflingu samfélagsins.

Einnig að stuðningur hafi verið veittur til frumkvöðla til að koma hugmyndum í framkvæmd, nýtt fjármagn komið til svæðisins sem miðar að atvinnuuppbyggingu, eflingu menningar og samfélagsins í heild sinni. Þá hefur samvinna meðal íbúanna aukist á ýmsum sviðum ásamt því að bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar hefur orðið betur áskynja um stöðu svæðisins.  

Á fundinum kynntu einnig nemendur Grunnskólans á Þingeyri framtíðarsýn sína, fulltrúar Ísafjarðarbæjar fóru yfir framkvæmd skipulagsmála og ýmis umhverfisverkefni, kynnt var stefnumótun og framtíðarsýn Blábankans og fulltrúi Arctic Fish fór yfir framtíðarsýn fyrirtækisins hvað varðar samfélagsábyrgð og þátttöku í samfélagsverkefnum.

DEILA