Ársfundur Orkubús Vestfjarða 2023 á fimmtudag

Höfuðstöðvar Orkubús Vestfjarða á Ísafirði.

Opinn ársfundur Orkubús Vestfjarða verður haldinn í Edinborgarhúsinu á Ísafirði fimmtudaginn 25. maí kl. 12:00

Á fundinum verða kynntar helstu stærðir úr ársreikningi félagsins fyrir árið 2022 og rætt almennt um starfsemina. 

Þá verður farið í stuttu máli yfir helstu framkvæmdir síðasta árs og þær framkvæmdir sem eru á dagskrá á þessu ári.  Einnig verður í stuttu máli farið yfir framtíðaráform fyrirtækisins.

Fundarmönnum verður gefinn kostur á að koma með fyrirspurnir til framsögumanna.

Ársfundurinn er öllum opinn og verður fundargestum boðið upp á súpu á staðnum.

Áætlað er að fundurinn standi til kl. 13:30

DEILA