Landsréttur staðfestir úthlutun aflamarks á Þingeyri

Á vef Byggðastofnunar er greint frá því að í síðustu viku hafi Landsréttur kveðið upp dóm í máli sem höfðað var á hendur Íslenska ríkinu vegna úthlutunar Aflamarks Byggðastofnunar á Þingeyri á árinu 2018.


Í dómi Landsréttar kemur fram að málefnaleg sjónarmið hefðu legið að baki ákvörðun Byggðastofnunar um að hafna umsókn Oturs ehf. og Sigluness hf. og ganga til samstarfs við aðra umsækjendur, en sú ákvörðun byggir á þeim sjónarmiðum sem fram koma í 10.gr. laga um stjórn fiskveiða (um Aflamark Byggðastofnunar) en þar er horft til verndunar brothættra sjávarbyggða svo notað sé orðalag Landsréttar.

Einnig var því hafnað að stofnunin hefði brotið gegn 10., 11. og 12. gr. stjórnsýslulaga. þ.e. rannsóknarreglunni, jafnræðisreglunni og meðalhófsreglunni.

Með dómi þessum var staðfestur dómur Héraðsdóms Reykjavíkur frá 13. október 2021.

DEILA