Daniel Badu yfirþjálfari íþróttaskóla HSV

Daniel Osafo-Badu hefur verið ráðinn til starfa sem yfirþjálfari Héraðssambands Vestfirðinga.

Daniel hefur mikla reynslu af þjálfun, hann hefur lokið við UFEA A gráðu og hefur hann m.a. starfað sem aðstoðarþjálfari meistaraflokks Vestra í fótbolta, verið leikmaður liðsins auk þess að þjálfa yngri flokka.

Einnig hefur Daniel starfað sem stuðningsfulltrúi í Grunnskólanum í Bolungarvík og við Menntaskólann á Ísafirði.  Daniel stundaði nám við Kingston University árið 2010 í Sports Science.

Daniel er heimamaður og hefur skýra sýn á starfsemi íþróttaskólans og er vel til þess fallinn að taka við keflinu af Heiðari Birni sem gegnt hefur starfinu undanfarin ár.

Framtíðin er björt hjá HSV og hefur íþróttaskólinn fest sig í sessi þar sem markmiðið með skólanum er að veita öllum börnum jöfn tækifæri þegar kemur að íþróttum og hreyfingu.

Í íþróttaskólanum hafa allir nemendur tækifæri til að kynnast því íþróttastarfi sem er í boði í sveitarfélaginu.

Daniel mun hefja störf um miðjan maí nk. og starfa við hlið Heiðars Birnis út maí mánuð, og tekur svo við keflinu frá 1. júní.

DEILA