Patreksfjörður – Útibú leikskólans í Safnaðarheimilinu

Leikskólinn Araklettur við Strandgötu á Patreksfirði.

Til að bregðast við biðlista sem myndast hefur hjá leikskólanum Araklettir á Patreksfirði hefur verið ákveðið að opna nýja starfs­stöð leik­skólans í Safn­að­ar­heim­ilinu á Patreks­firði frá og með 1. mars n.k.

Deildin verður starf­andi tíma­bundið þar til að ný viðbygging við Araklett verður tekin í notkun.

Á starfsstöðinni verða 2 starfsmenn og mun að minnsta kosti annar þeirra fylgja börnunum af deildinni yfir á  Araklett eftir sumarleyfi leikskólans þegar ný viðbygging verður tekin í notkun. Byrjað er að taka við börnum á deildina.

Í janúar auglýsti Vesturbyggð eftir dagforeldrum til starfa á Patreksfirði sem fengju ákveðna styrki frá sveitarfélaginu samkvæmt sérstökum reglum þar um. Ekki tókst að fá dagforeldra til starfa og því var gripið til þessa ráðs.

DEILA