Nordregio kallar eftir öflugum fulltrúum Z kynslóðar

Nordregio og Norræna ráðherranefndin eru að setja á laggirnar nýtt tengslanet ungs fólks á Norðurlöndum og óska eftir þátttakendum.

Hópurinn mun hittast á fimm vinnustofum á árinu 2023 til að ræða hvaða þættir skipti ungt fólk mestu máli þegar kemur að lífi í byggðum landsins.

Hvað telur þú að ungt fólk kalli helst eftir þegar kemur að því að búa, starfa og blómstra á landsbyggðinni?

Ef þú hefur skoðun á því, ert á aldrinum 18-25 og ýmist býrð á landsbyggðinni eða hefur búið þar, þá getur þú verið með!

Ef þú hefur áhuga á að vera fulltrúi Íslands og sækja vinnustofur með 23 öðrum ungum einstaklingum frá öllum Norðurlöndunum getur þú sótt um þátttöku.

Hér er um að ræða frábært tækifæri til að vera rödd þinnar kynslóðar og öðlast dýrmæta reynslu og tengslanet.

DEILA