KSÍ: fyrirlestur á Ísafirði um einelti, samskipti og forvarnir

Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður KSÍ.

Fimmtudaginn 23. febrúar mun KSÍ bjóða upp á fyrirlestur sem ber heitið „Einelti, samskipti og forvarnir“.  Ókeypis aðgangur er að fyrirlestrinum, sem er öllum opinn, og verður haldinn á efri hæð í vallarhúsi Vestra á Torfnesi, Ísafirði kl. 17:00-19:00.

Fyrirlesari er Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður KSÍ, en Vanda hefur víðtæka þekkingu og reynslu af viðfangsefninu.

Viðfangsefni:

  • Einelti og samskiptavandi
  • Jákvæðir og neikvæðir leiðtogar
  • Liðsandi
  • Foreldrasamskipti

Að námskeiðinu loknu eiga þátttakendur að vera komnir með góða innsýn í:

  1. Hvernig á að koma auga á, fyrirbyggja og taka á einelti og samskiptavanda í knattspyrnuliðum.
  2. Hvernig hægt er að efla iðkendur sem jákvæða leiðtoga
  3. Hvernig efla má liðsanda
  4. Hvernig stuðla má að jákvæðum foreldrasamskiptum

Þjálfarar með KSÍ/UEFA þjálfararéttindi fá 4 endurmenntunarstig fyrir að sitja fyrirlesturinn. KSÍ hvetur einnig fólk í stjórnum knattspyrnudeilda og barna- og unglingaráða til mæta á fyrirlesturinn.

Skráningarhlekkur á viðburðinn

DEILA