Knattspyrna: Morten, Mikkel og Gustav til liðs við Vestra

Vestri hefur gengið frá samningum við þrjá leikmenn, sem eiga það sameiginlegt að vera allir frá Danmörku.

Þetta eru þeir Morten Hansen, Mikkel Jakobsen og Gustav Kjeldsen.

Morten, sem er 29 ára varnarmaður spilaði á síðasta tímabili með Kórdrengjum, Mikkel er 23 ára sóknarsinnaður miðjumaður sem kemur frá Leikni Reykjavík og Gustav er 23 ára varnarmaður sem spilaði síðast með HB Thorshavn.

Gerður var tveggja ára samningur við þá alla og eru þeir væntanlegir til landsins strax á sunnudaginn kemur.

DEILA