Íbúum fjölgar hlutfallslega mest í Kaldraneshreppi

Íbúum Vestfjarða fjölgaði um 17 íbúa á tímabilinu frá 1. desember 2022 til 1. febrúar 2023. Íbúum Ísafjarðarbæjar fækkaði um 8, í Vesturbyggð hefur fjölgað um 6 íbúa og í Bolungarvík fjölgaði um 7 íbúa og eru þeir nú 996. 

Þegar horft er til hlutfallslegrar breytingar á íbúafjölda þá hefur íbúum Kaldraneshrepps fjölgað hlutfallslega mest síðastliðinn mánuð eða um 6,2% en íbúum þar fjölgaði um 7 íbúa.

Hlutfallslega fjölgaði íbúum næst mest í Skorradalshreppi eða 5,2% en þar fjölgaði íbúum um 3 einstaklinga síðastliðinn mánuð.  Af 64 núverandi sveitarfélögum þá fækkaði íbúum í 19 sveitarfélögum en fjölgaði eða stóð í stað í 45 sveitarfélögum.

Íbúum fjölgar eða stendur í stað í öllum landshlutum nema á Norðurlandi Vestra, þar fækkar um 0,3% eða 23 íbúa. Hlutfallslega mest hefur fjölgunin verið á Suðurnesjum eða um 0,8% sem er fjölgun um 257 íbúa. Samtals fjölgar íbúum á landinu öllu um 1380 frá 1. desember 2022 til. 1. febrúar 2023 sem er um 0,4%.

Hér er skrá yfir fjölda íbúa eftir sveitarfélögum í byrjun mánaðarins og samanburð við íbúatölur frá 1. desember fyrir árin 2019-2022.

Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi.

DEILA