Boðað er til íbúafundar í félagsheimili Patreksfjarðar þriðjudaginn 21. febrúar kl. 17.
Veðrið undanfarnar vikur varð til þess að skilyrði sköpuðust fyrir ofanflóð í Vesturbyggð. Tvö flóð féllu í hlíðunum fyrir ofan Bíldudal, eitt snjóflóð í stærra lagi á Raknardalshlíðinni og krapaflóð í gegnum byggðina á Patreksfirði þann 26. janúar síðastliðinn. Mikil mildi er að enginn varð fyrir flóðunum og að þau hafi ekki haft í för með sér verulegar skemmdir. Þau höfðu þó töluverð áhrif á íbúa, enda rétt rúm 40 ár frá mannskæðum flóðum á Patreksfirði.
Vesturbyggð telur því mikilvægt að staldra við, fá upplýsingar um flóðin, viðbúnað og áætlanir í ofanflóðavörnum frá þar til bærum aðilum og gefa íbúum kost á að spyrja allra þeirra spurninga sem þeir hafa er tengjast atburðunum.
Dagskrá fundarins er eftirfarandi:
- Veðurstofan
Veittar verða upplýsingar um flóðin sem féllu fyrir ofan byggðirnar á Bíldudal og á byggðina á Patreksfirði 26. janúar síðastliðinn. - Lögreglan á Vestfjörðum
Sagt verður frá starfi aðgerðarstjórnar, vettvangsstjórnar og starfi viðbragðsaðila. - Ofanflóðasjóður
Upplýst verður um hvaða ofanflóðavarnir hafa verið settar upp í Vesturbyggð og hvaða framkvæmdir séu næst á dagskrá í sveitarfélaginu auk mögulegs inngrips fyrr. - Náttúruhamfaratrygging
Hvað tryggir Náttúruhamfaratrygging og hvernig tryggjum við eignir okkar sem best fyrir náttúruhamförum? - Samantekt og fyrirspurnir.