Flateyrarverkefnið framlengt til 30. júní 2024

Varnargarðurinn á Flateyri. Mynd: Kristinn H. Gunnarsson.

Nýsköpunar- og þróunarverkefni á Flateyri, einnig þekkt sem Flateyrarverkefnið, hefur verið framlengt til 30. júní 2024.

Verkefnið er unnið í samstarfi við verkefnisstjórn á grundvelli samnings milli samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis, Ísafjarðarbæjar og Vestfjarðarstofu og var komið á koppinn í kjölfar snjóflóðanna 2020.

Síðastliðið haust sótti Ísafjarðarbær um framlengingu Flateyrarverkefnisins um eitt ár, meðal annars á þeim forsendum að Covid-19 hefði tafið starfið og að mörgum verkefnum væri ólokið.

Ríkisstjórnin samþykkti beiðnina þriðjudaginn 21. febrúar, og bætast þá væntanlega 20 miljónir við Flateyrarsjóðinn auk þess sem fjármagn verður til fyrir stöðu verkefnisstjóra í ár í viðbót.

DEILA